Sunday, 19 October 2008

Sunnudagur

Rólegur sunnudagur framundan. Við sváfum nokkuð lengi svona miðað við fjölskyldufólk og það var bara mjög notalegt.
Rakel á leið í afmæli til Murong og við fórum áðan í Nova Lund að kaupa afmælisgjöf.

Í gær fór Arnar Ingi í karate og Rakel á skauta. Svo fór Rakel í afmæli til Gaiu og Tristan kom í heimsókn til Arnars Inga. Ég bakaði muffins og bjó til Rocky road nammi.

Buðum Minna, Agnesi og börnum í mat og það var mjög gaman að hittast og spjalla.

Ný vika framundan og það eru bara fjórir skóladagar hjá krökkunum því þau eru í fríi á föstudaginn og við komum þá til Íslands, eða á maður kannski að kalla það Kreppuland?
Komum sem sagt á föstudaginn og förum svo aftur heim til Lundar á laugardaginn 1.nóvember.

No comments: