Saturday, 11 October 2008

Skátaferð

Núna er Arnar Ingi í skátaferð hér í Lundi. Það var lagt af stað með bakpoka og nú á að leita að tröllum og elda eitthvað úti. Svo á að gista í skátaheimilinu í nótt en með tjaldstemmningu því að krakkarnir áttu að koma með tjalddýnu og svefnpoka og svo er frekar kalt í skátaheimilinu því það er svona gamall bóndabær við akrana. Arnar Ingi var nú ekki til í það að sofa þannig að við sækjum hann í kvöld kl.20:00. Ég er svo sem ekkert ósátt við það, veit að ég hefði verið stressuð að láta hann gista í kuldahúsi með ókunnugu fólki og hann fékk algjörlega að ráða því sjálfur hvort að hann gisti eða ekki. En ég er mjög ánægð með að hann vilji vera með í ferðinni.

No comments: