Þá er allt komið í rútínuna aftur sem er alveg ágætt. Páskafríið var mjög gott og skemmtilegt og nú er það bara skóli hjá krökkunum, skátar, karate og sundnámskeið.
Krakkarnir eru nú reyndar búin að vera frekar þreytt á morgnanna núna, eiga smá erfitt með að fara að sofa snemma á kvöldin. Veðrið er búið að vera svo gott þannig að þau fara alltaf út að leika eftir kvöldmat og vilja ekkert koma inn strax.
Við fórum í afmæli til Ragnars Helga á annan í páskum. Fengum fullt af kökum og öðru góðgæti, namminamm. Gaman að hitta allt fólkið. Páskaeggin á heimilinu auðvitað búin, ekki hægt að geyma svona sælgæti lengi.
Thursday, 16 April 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Vonandi gengur ykkur vel að komast yfir páskaátið okkur gengur ekki allt of vel því þú varst með svo gott á borðum þá daga sem við vorum hjá ykkur. En hvað með það við vonumst til að koma einhvern tíma aftur og takk fyrir okkur þetta voru dásamlegir dagar.
kv. Hulda, Villi og co.
Post a Comment