Monday, 17 August 2009

Þá byrjar rútínan aftur.

Skólinn hjá krökkunum byrjar aftur á morgun og öll rútína fer að komast í gang.
Skátarnir byrja svo í næstu viku hjá Arnari Inga og einnig sundnámskeiðið hjá báðum krökkunum.

Mamma og pabbi koma svo í heimsókn til okkar í lok næstu viku, 27.ágúst og ætla að stoppa í 2 1/2 viku. Það verður gaman því að Helgi vinnur alltaf í Swindon í Englandi alla virka daga þannig að ég fæ einhvern félagsskap á meðan. Það er ótrúlegt hvað helgarnar eru fljótar að líða því Helgi kemur heim seint á föstudagskvöldum og fer svo fyrir allar aldir á mánudagsmorgnum að vinna. En þetta er sem betur fer tímabundið og ég fæ líklega að hafa hann hjá mér aftur í desember.

Svo er ég að fara að byrja í Komvux að læra smá meiri sænsku. Þetta er sænska fyrir útlendinga og ég á að byrja á miðvikudaginn og þetta er þrisvar í viku. Er reyndar ekki alveg að skilja bréfið sem ég fékk í dag vegna skólans því að það er eins og þetta námskeið verði ekki kennt á daginn heldur bara í fjarnámi. Ég hef nú reyndar ekki mikið við fjarnám að gera því ég skil sænskuna vel og les skáldsögur án vandræða og kann að skrifa sænskuna ágætlega. Það sem ég þarfnast er að æfa mig í samræðum, tala og hitta fólk. En þetta kemur allt saman í ljós þegar ég mæti á miðvikudaginn.

Ég er núna að reyna að koma mér í gang í líkamsræktinni aftur, það hefur nú ekki farið mikið fyrir henni í sumar og þvert á móti hef ég örugglega sett heimsmet í áti. Og ég finn líka fyrir því heimsmeti, þrengri föt og bólgnari líkami, alltaf þrútin og þreytt. En vonandi lagast mataræðið með þegar það kemst á rútína í ræktinni.

No comments: