Mamma og pabbi komin í öllu sínu veldi og auðvitað með fulla tösku af hinu og þessu. Þau komu með lambalæri, rúgbrauð og plokkfisk og auðvitað fullt af lakkrís sem ég er búin með :-(
Krakkarnir fá alltaf einhvern pakka með dóti og nammi í og eru mjög ánægð og bíða alltaf spennt eftir að fá pakka þegar þau koma.
Við fórum í bíltúr í gær á fallegum og sólríkum sunnudegi en það var reyndar heilmikið rok.
Við keyrðum til Viken, Höganäs og Mölle sem eru bæjir norðan við Lund ca. klukkutíma héðan.
Þetta eru nokkuð gamlir og gamaldagsbæjir við ströndina og þar eru bátar og dýr hús við strandlengjuna. Mörg húsin voru mjög gömul og lítil og allar götur þröngar, það var eins og við værum komin aftur í tímann og allt var mjög sænskt þarna. Gaman að skoða. Við röltum um gamlan kirkjugarð og það var ótrúlegt hvað allt var snyrtilegt og fallegt þar.
Einnig fórum við að skoða vita og þegar við vorum komin svona langt upp á bergið þar sem vitinn stóð þá var þvílíkt rok en svakalega fallegt útsýni enda veðrið fallegt.
Svo fórum við að skoða gamla kornmyllu sem var í fullum gangi. Þar klifruðum við upp á efstu hæð þar sem var verið að mala kornið og mylluspaðarnir snérust. Neðst var verið að selja kornið sem er verkað þarna í myllunni.
Við gengum mikið og skoðuðum okkur um, krakkarnir voru bara ótrúlega dugleg að ganga, þetta var mjög skemmtilegur dagur.
Veðurspáin fyrir morgundaginn er alveg frábær þannig að ég, mamma og pabbi erum að hugsa um að skreppa aðeins á ströndina meðan börnin eru í skólanum. Helgi fer eldsnemma í fyrramálið til Englands að vinna og kemur á föstudagskvöldið til baka. En um að gera að nota góða daginn fyrir strandarferð, held að þetta sé eini svona rosalega góði dagurinn sem er spáð á næstunni.....vonandi stenst spáin!
Monday, 31 August 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment