Tuesday, 1 September 2009

Ströndin

Við fórum á ströndina í dag. Veðurspáin rættist og veðrið var frábært, sól og 25°C hiti en samt frekar mikið rok. Það var nú ekki margt um manninn á ströndinni um hádegisbilið því að nú eru auðvitað allir skólar byrjaðir og fólk byrjað að vinna aftur eftir sumarfrí. Við höfðum alla vega nóg pláss.

1 comment:

Anonymous said...

O. æðislegt.
Vildi ég væri með ykkur.
SK