Wednesday, 23 September 2009

Það styttist.....

.... í að Anna María komi í heimsókn, bara 2 dagar! Og Helgi kemur líka heim sama kvöld....það verður partý!!

Það er búið að vera fjör hérna í dag. Vinur hans Arnars Inga kom með okkur heim úr skólanum og svo var hamast og leikið, hann borðaði með okkur og svo fóru þau öll á skátafund núna.

Á mánudaginn var Iceland Express með tilboð. Ég keypti ferð til Íslands 28.nóv. til 7. des. Lálandið á að vera tilbúið 1.desember og þá ætla ég að vera á fullu að þrífa og ganga frá og koma húsgögnunum inn í húsið og gera allt tilbúið svo við fjölskyldan getum komið í heimsókn milli jóla og nýárs þ.e koma til Íslands þá og fara aftur til Sverige eftir áramótin. Og það skemmtilega við að þetta tilboð kom er að mamma og pabbi ætla að koma aftur í heimsókn í nóvember. Þau koma 17.nóvember og svo förum við saman til Íslands þann 28.nóv.

Svo er ég að koma til Íslands eftir 10 daga, kem laugardaginn 3.okt til 10.okt. En það verður heilmikið sem ég þarf að gera og redda í sambandi við húsið. Verð líklega í erindum mest allan tímann, en til þess er þessi ferð nú farin.

No comments: