Saturday, 12 September 2009

Garðurinn okkar

Hann pabbi er aldeilis búinn að taka til hendinni í garðinum hjá okkur. Það er búið að klippa tréin og kantskera, setja illgresisdúk, mold og stækka í kringum epla og kirsuberjatréin okkar.

Svo vorum við með einn illgresisreit sem þar sem brómberjarunnar eru og einhverjir steinar og algjör órækt því að það er ekki hægt að slá grasið þar í kring. Við erum búin að tala um að breyta og gera eitthvað við þetta svæði frá því við fluttum hingað...en framtakssemin ekki meiri en það að við gerðum aldrei neitt.
En svo tók pabbi sig til og klippti og klippti allt grasið og illgresið burtu og þá loksins sá maður aðeins hvernig svæðið leit út. Svo fórum við og versluðum aðeins inn og pabbi hamaðist við að undirbúa svæðið undir það sem við ákváðum að gera. Og viti menn....eftir margra klukkutíma vinnu í tvo daga þá erum við með þetta fína og snyrtilega svæði....ekkert illgresi og brómberjarunnarnir njóta sín vel. Settum jarðvegs/illgresisdúk undir allt saman og fullt af skrautsteinum yfir og settum tvö sólarselluljós og þetta kemur svo vel út....við erum alveg svakalega ánægð og þakklát fyrir þetta allt saman.

No comments: