Friday, 18 September 2009

Ein þessa vikuna

Það var nú heldur tómlegt á mánudaginn, Helgi fór að vinna í Englandi og mamma og pabbi fóru til Íslands. Það hefði nú verið skemmtilegra að þau færu ekki öll sama dag.

Fór í próf á mánudaginn og gekk bara allt í lagi held ég miðað við það að ég lærði nú ekki mikið undir prófið, var að halda uppá afmæli Rakelar og svo vildi ég eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni minni, fyrst þau voru líka að fara á mánudeginum. En það koma vonandi niðurstöður úr prófinu á mánudaginn.

Það er reyndar heilmikill heimalærdómur í náminu og ég er að reyna að lesa skáldsögu sem er 350 bls. og við eigum að skila ritgerð um eftir 3 vikur. Auk þess erum við með sjálfa skólabókina, stuttar ritgerðir og önnur verkefni.Veit ekki hvað ég verð dugleg að læra því Anna María kemur í heimsókn eftir viku og stoppar í tæpa viku...jibbíí!! Og svo er ég á leiðinni til Íslands eftir 2 vikur og verð í eina viku. Ætli ég verði ekki bara að læra almennilega um miðjan október þegar ég kem til baka frá Íslandi! En auðvitað reyni ég að halda eitthvað í við námsefnið þó svo ég sé með gesti og tek svo sjálf vikufrí.

Það er algjör afmælistörn allar helgar núna, Rakel fer á laugardaginn, Arnar á sunnudaginn. Næstu helgi fer svo Arnar í afmæli bæði á laugardaginn og sunnudaginn. Sem sagt nóg að gera.

Á morgun er menninganótt í Lundi og nóg að gera. Píanó kennarinn hans Arnars Inga verður með smá píanóhorn í tónlistarhúsi og Arnar ætlar að fara og spila smávegis, það verður spennandi að sjá.

No comments: