Þá eru skátarnir byrjaðir aftur. Rakel er svo ánægð vegna þess að hún fær að byrja líka. Það þarf að vera í 8 ára bekk til að byrja en hún fær að byrja vegna þess að Arnar Ingi er í skátunum.
Bernhard vinur hans Arnars Inga mætti líka á skátafund í kvöld. Hann var ekki alveg nógu kjarkmikill í fyrra að byrja en núna var hann bara spenntur og ánægður með skátana og segist ætla að vera í skátunum í vetur.
Svo styttist í að prinsessan á heimilinu eigi afmæli, hún tilkynnti mér það áðan að það væru 10 dagar í afmælið hennar. Hún ætlar að hafa náttfatapartý og það á að dansa og hafa diskóljós og ýmsar aðrar hugmyndir. Við finnum eitthvað út úr því fyrir dömuna.
Stella systir hans pabba sem býr í Svíþjóð (ca. 1 1/2 - 2 klst.frá Lundi) ætlar að koma í heimsókn til okkar ásamt þremur dætrum sínum á sunnudaginn. Við hlökkum mikið til, alltaf gaman að fá gesti og hafa afsökun/ástæðu til að baka köku og borða.
Wednesday, 2 September 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment