Nú eru börnin byrjuð í skólanum og eru mjög ánægð með það. Rakel svo stolt að vera í eldri hópnum núna og Arnar Ingi er í elsta árganginum í skólanum og er alveg rosalega ánægður með það. Það er líka loksins eitthvað að fara að gerast í námsefninu hjá honum. Hann er t.d að byrja í ensku, fer í handavinnu/smíði/heimilisfræði. Hingað til er bara búið að vera smávegis að lesa, skrifa og reikna létt. Og reyndar leikfimi og söngur en okkur hefur ekki fundist vera neitt sem þau hafa verið að læra. Aftur á móti er gert mikið með útiveru og umhverfið og svoleiðis þætti sem við erum mjög ánægð með.
Svo er ég byrjuð í sænskunni í Komvux. Ég fer sem sagt þrjá morgna í viku og svo er svolítið um lestur og önnur verkefni í heimalærdómi. Mér líst bara alveg ágætlega á þetta. Það er reyndar ein íslensk stelpa í bekknum mínum og það er mjög fínt en kannski hefði auðvitað verið betra að vera eini íslendingurinn. Annars eru þetta flest fólk frá Íran, Kína, Rúmeníu, Póllandi og þess háttar löndum, við íslensku stelpurnar eru einu sem eru ljósar yfirlitum, held ég bara ;-)
Helgi kemur heim í kvöld og ég hlakka til að hitta elskuna mína. Mamma og pabbi koma svo á fimmtudaginn í næstu viku og Helgi ætlar að koma heim það kvöld líka, bara fjórir vinnudagar, jibbíí! Og svo var hann að fá að vita að mánudagurinn 31.ágúst væri almennur frídagur í Englandi þannig að hann fer svo ekki aftur í vinnu fyrr en á þriðjudeginum, aftur bara fjórir vinnudagar þ.e í Englandi.
Góða helgi!
Friday, 21 August 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment