Veðrið síðustu daga er búið að vera mjög fínt. Við Helgi tókum bílinn í þrif og bón og vorum mjög ánægð með árangurinn, núna þarf bara að þrífa rúðurnar að innan.
Krakkarnir byrjuðu á sundnámskeiði í gær og það var bara mjög gaman hjá þeim. Eftir sund fórum við í heimsókn til Siggu og fjölskyldu. Þau eru með 12 metra sundlaug í garðinum og auðvitað skelltu krakkarnir sér í laugina með Aroni Bjarka 4 ára og það var leikið og hamast. Okkur var svo boðið í dýrindis kvöldmat og fengum eplaköku og ís í eftirrétt. Við borðuðum úti á palli í góða veðrinu og útsýnið úr húsinum hjá Siggu og Sigga er alveg meiriháttar. Húsið stendur við ströndina og þar sér maður út á Eyrarsundbrúnna og yfir til Kaupmannahafnar. Þetta var góður dagur í góðum félagsskap!
Tuesday, 25 August 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment