Monday, 31 March 2008

Jæja spákonur, hvað þýðir þetta?

Kaffibollinn hans Helga

Espresso house Malmö

Sigrún og mamma á Espresso House í Malmö.

Ég fór í skólann í morgun og kellurnar skelltu sér í göngutúr. Síðan var stefnan tekin til Malmö í frábæru veðri, 12°c hita og sólarglætu. Það er komin þvílík vorstemmning í bæinn og kaffihúsin komin með útiborðin. Reyndar settumst við inn því að reykingarpakkið sat allt úti og mengaði loftið! Svo var auðvitað kíkt í búðir og verslað aðeins....og hver ætli hafi keypt mest?.....jú, ég! Það er alltaf dýrast fyrir mig að fá gesti því að ég finn alltaf eitthvað nýtt og spennandi í öllu búðarrápi!

Kellur komu hlaðnar kræsingum í gær, m.a komu þær með hangikjöt, lambalæri, skyr, rababarasultu, flatkökur, hangiálegg, páskaegg og fullt af íslenskum tímaritum, bæði slúður og svo gagn (þ.e Gestgjafann). Einnig fengum börnin DVD myndir. TAKK FYRIR OKKUR!

Sunday, 30 March 2008

Valur

Helgi og Valur í golfi í 11°c hita 30.mars 2008.

Kalas

Rakel í afmæli hjá Lovisu.

Breyttur tími

Nú er búið að færa klukkuna fram um einn klukkutíma. Það er nú tveggja tíma mismunur á Íslandi og Svíþjóð þ.e klukkan er núna 9:00 hjá okkur en bara 7:00 hjá ykkur á Íslandi.

Rakel á leið í barnaafmæli og mamma og Sigrún koma í kvöld....frábært!

Sólin skín og strax komin tæplega 7°c hiti úti og eins og áður sagði er kl.9:00.

Saturday, 29 March 2008

Síðasti þátturinn af næturvaktinni

Jæja, þá erum við búin að sjá alla seríuna af næturvaktinni. Og þvílík snilld! Þessir þættir fengu mig til að hlæja allan tímann, og ekki skemmdi fyrir þessi Lundar vinkill sem kom ítrekað fram. Leikurinn fannst mér stórgóður, og handritið frábært (eða spuninn, hvort sem vóg nú þyngra).

Það var s.s. horft á Næturvaktina í staðinn fyrir að hafa vöffluboð. Nágrannakonan hringdi í morgun og sagði kallinn væri kominn með einhverja pest og þau kæmust ekki.

Nammidagur

Friday, 28 March 2008

Föstudagur!!

Þá er enn ein vikan liðin og nú er sko vor í lofti í Lundi. Búið að vera sól í allan dag og núna er 8°c hiti.
Fórum í bæinn og á kaffihús, Espresso House, sem er nánast eina kaffihúsið hérna! Alla vega er það á mörgum stöðum og með gott úrval af kaffi og sætabrauði, það eru líka seldar alls konar samlokur og gotterí...ummmm.

Í kvöld er svo úrslitaþátturinn af Let's dance! sem er þannig að það eru búin að vera fullt af "pörum" að keppa í alls kyns dansi. Pörin eru samansett af einum lærðum dansara og svo einum einhverjum frægum svía, t.d var einn af Herreys bræðrum, ef þið munið eftir Diggilu, diggiley eurovision laginu í gamla daga, þrír gaurar í gylltum skóm! Ég man svo vel eftir þeim.

Helgin svona "lagom" plönuð (smá sænsku sletta fyrir Hafdísi). Barnaafmæli hjá Rakel, kirkjuskóli hjá börnunum og svo verðum við kannski með kaffi eða matarboð á morgun fyrir nágranna okkar. Vitum það fljótlega, hann er læknir og þarf kannski að vinna.

Bara 2 dagar í mömmu og Sigrúnu, bíð spennt! Þær ætla líka að koma með alls konar íslenskar kræsingar með sér....ekki verra!

Hafið það gott um helgina og njótið þess að vera í fríi.

Espresso house kannski?

Kaffe latte og súkkulaðikaka

Thursday, 27 March 2008

Arnar Ingi að horfa á barnatímann....Bolibompa.

Rakel að horfa á barnatímann...Bolibompa.

Wednesday, 26 March 2008

Veðrið

Það er alveg ótrúlegt með þetta veður. Vaknaði í morgun og allt hvítt! Og nú er þetta mesti snjór sem hefur komið. Hann er nánast farinn núna, sólin búin að skína í dag og kominn 5°c hiti. En það hefur ekki komið neinn vetur hjá okkur, búið að vera eins veður í allan vetur skýjað og um 5°c hiti. Og svo koma páskarnir og þá kemur veturinn. Búið að vera kalt um páskana og þó nokkuð næturfrost. Reyndar er veðurspáin fín, á að fara upp í 10°c hita um helgina....við sjáum bara hvað gerist. Svíarnir eru svona eins og íslendingarnir....tala um veðrið!

Það bættust við nokkrir í skólann í dag. Ein stelpa frá Þýskalandi, ein frá Kýpur og svo auðvitað einn frá Grikklandi í viðbót! Það eru þá komnir 9 grikkir í bekkinn núna. Við erum held ég 15 nemendur núna.

Krakkarnir eru alltaf jafn ánægð í skólanum. Sótti þau í gær og þá var bara sagt "nei, má ég vera lengur?" En síðan kom Rakel með mér heim og Arnar Ingi var klukkutíma í viðbót og kom svo heim. Skólinn er svo nálægt okkur, bara 500m frá heimilinu og engin gata að fara yfir, bara göngustígur alla leið.

Tuesday, 25 March 2008

Fríið búið

Nú er páskafríið búið og hversdagsleikinn tekinn við. Skólinn byrjaður hjá okkur og vinnan hjá Helga. Ég ætla nú samt að hafa smá páskaskraut heima hjá okkur út vikuna. Þori varla að segja það en páskaeggin á heimilinu eru öll að klárast....kannski eins gott!

Ég er byrjuð á námskeiði 2 í sænsku (hvert námskeið er 4 vikur) og það eru ekkert nema grikkir nánast á þessu námskeiði. Þau eru átta. Svo byrjar ein íslensk stelpa í næstu viku, hún var líka á námskeiði 1. Það er kínversk stelpa, einn frá Írak og ein frá Kýpur. Veit að það koma einhverjir fleiri á morgun og það verður spennandi að vita hvaðan þau koma. En þetta er bara voða gaman þó svo ég viti ekki hvað ég læri mikið af þessu. Mér gengur vel með málfræðina og að skrifa stíla en það sem ég þarf er að æfa talið, samræður. Við erum svo stór íslendingahópur hérna að við tölum alltaf íslensku. Svo þegar ég er ekkert að vinna úti þá æfist maður ekkert í sænskunni. Tala auðvitað aðeins við kennarana hjá krökkunum og svoleiðis en það er svo stutt alltaf.

Styttist í að mamma og Sigrún Karls. komi í heimsókn...bara 5 dagar....hlakka til!

Monday, 24 March 2008

Njósnað um pabba sinn.

Kamínan fína

Það var eitthvað svo kuldalegt úti þannig að við kveiktum bara upp í kamínunni. Gerum reyndar nokkuð mikið af því að kveikja upp....það er svo notalegt á kvöldin.

Páskadagur

Páskadagur var bara þessi fíni dagur. Börnin byrjuðu að spyrja um páskaeggið snemma og fljótlega eftir morgunverð þá földum við páskaeggin þeirra og því fylgdi mikil spenna og skemmtun að leita að þeim.
Svo var sest að snæðingi þ.e páskaeggjasnæðingi.

Foreldrarnir fengu sömu meðferð með sín páskaegg, þurftum að leita og svo fljótlega var eggið opnað og við helltum okkur á kaf í át.

Eftir allt sykursjokkið drifum við okkur út í göngutúr og á leikvöll. Veðrið var mjög fallegt, logn, sól en hiti bara í frostmarki.

Svo var komið inn, borðað smá og svo aftur á kaf í páskaeggin. krakkarnir drifu sig svo út að leika við vini sína og ég fór að stússast í lambalærinu og búa til eftirrétt.

Ummmm.......kvöldmaturinn var svo góður.....íslenskt lambalæri, brúnaðaðar kartöflur og tilheyrandi. Og eftirrétturinn...nammm....svaka góður.

Svo var ekki hægt að gera neitt annað en leggjast smá útaf með útþaninn maga eftir át dagsins. Það tekur sko á að borða svona svakalega. En smá átak eftir páska, vonandi!

Sunday, 23 March 2008

Mascarpone desert

Málshættir

Hér koma málshættirnir sem fjölskyldumeðlimirnir fengu.

Helgi: "Sá sem fyrstur grípur til valdbeitingar sýnir að hann hefur ekki fleiri rökfærslur".
Elsa: "Það er verst með hyggindin, sem maður öðlast með aldrinum, hvað lítill tími er til að nota þau".
Arnar Ingi:"Vinnan er lífsskilyrði, viskan er takmarkið, hamingjan launin".
Rakel: "Safnast þegar saman kemur".

Veit nú ekki hvort þetta passi sérstaklega við okkur, en kannski kemur það með hyggindunum :)

Úti að leika.

GLEÐILEGA PÁSKA!

Páskaeggin fundin

Páskaeggja leitin hófst snemma á heimilinu og gleðin var mikil þegar þau fundust.

Saturday, 22 March 2008

Bosjökloster

Fórum í smá bíltúr á Skáni. Kíktum m.a á kirkju í Höör.

Skattskýrsla

Nú sitjum við hjónin og erum að vesenast í skattskýrslunni okkar. Skiladagurinn er víst bráðum, þannig að best að ljúka þessu af. En mikið er þetta alltaf leiðinilegt....þá má nú samt hrósa happi yfir því hvað það er mikið forskráð á skýrsluna sem gerir þetta nú léttara. Svo er það sænska skattskýrslan en það þarf ekki að skila henni fyrr en í byrjun maí og hún er nú aðeins minna mál en þessi íslenska hjá okkur, vona ég alla vega :)

Friday, 21 March 2008

Ballet prinsessan

Rakel dansar í náttfötunum.

Rólegheit

Föstudagurinn langi byrjaði vel, sváfum öll aðeins frameftir og höfðum það notalegt. Eftir morgunmat fóru börnin að horfa á teiknimyndir og ég skreið bara aftur upp í rúm og fór að lesa. Hvenær gerðist það eiginlega síðast? En hvað þetta var notalegt! Fór ekki fram úr fyrr en kl. 11.
Þetta er nú eitthvað sem maður ætti að reyna að gera einn sunnudag í mánuði eða svo. Algjör leti og rólegheit.

Er reyndar búin að þvo þrjár vélar af þvotti, ganga frá þvotti, krydda lambalærið sem verður á páskadag, strjúka yfir gólfin, fara í sturtu og lesa smá meira. Og auðvitað borða nammi inn á milli. Það er eitthvað sem fjölskyldan er búin að vera dugleg í síðustu daga...eða kannski vikur!
Reynum að taka á því eftir páska.

Er enn að velta því fyrir mér hvað ég á að hafa í kvöldmatinn þ.e ég er með kjúklingabringur en veit ekki alveg hvort ég eigi að gera einhvern kjúklingarétt eða grilla bara bringurnar, nota þær í mexíkanskan rétt, gera kjúklingapasta eða hvað? En hef nú enn einhvern tíma í að ákveða það.

Ekkert sérstakt planað í dag, förum kannski í smá göngu- eða hjólatúr ef það styttir upp, nenni ekki í rigningu, alla vega ekki núna.

Og smá orðsending frá Helga...þið eruð nú meira skítapakkið , kíkið á síðuna okkar en kvittið ekki fyrir þó svo að við höfum beðið ykkur fallega um það! Vonandi bætið þið ykkur, bara að kvitta einu sinni. :) Páskakveðja Elsa. ;)

P.S Takk fyrir Ásdís, Hafdís og Linda að kvitta....þið eruð æðislegar!!

Föstudagurinn langi

Arnar Ingi í Star Wars tölvuleik.

Thursday, 20 March 2008

Hið heilaga skírdags lasagna

Fylling í magann fyrir nammiátið!

Glad påsk!

Á hlaupum milli húsa með fullar körfur af nammi :)

Skírdagur

Þessi dagur er mjög skemmtilegur fyrir börn hérna í Svíþjóð. Það er gömul hefð að klæða sig upp sem lítil kerling, vera með slæðu og í pilsi og ganga í hús og óska gleðilegra páska. Þá annað hvort fá krakkarnir nammi eða pening.

Arnar Ingi setti á sig slæðu en var reyndar málaður í framan eins og Pikachu (Pokémon) og Rakel setti á sig slæðu og fór í pils. Svo gengu þau um hverfið og bönkuðu uppá og sungu fyrir fólkið.
þau komu heim hlaðin nammi og með eitthvað af pening og einn átti ekkert nammi og gaf þeim frosna pizzu! Um að gera að redda sér og svekkja ekki börnin.

Búinn að vera fínn dagur, fallegt veður, logn og sól en kalt, um 2°c. Spáin er reyndar ekkert sérstök, fáum einhverja lægð, kannski frá Íslandi? þannig að það verður kuldi og eitthvað rok á morgun.

Reyndar eru páskarnir hérna ekkert sérstaklega heilagir. Í dag var bara venjulegur dagur, allar búðir opnar, leikskólar og frístundaheimili. Margar matvöruverslanir eru opnar alla páskana og einnig "Mallin" (Kringlan). En síðasti skóladagurinn var föstudaginn í síðustu viku þannig að börnin voru byrjuð í páskafríi. Þeir sem þurftu svo á að halda höfðu börnin á frístundaheimili og í leikskólanum því allt annað er opið! Reyndar eru svíar mjög fjölskylduvænir og reyna að taka frí með börnunum þegar það eru skólafrí, jólafrí og páskafrí.

Núna sitja börnin og borða nammi og telja dagana þangað til þau fá íslenska páskaeggið sitt!

Hafið það gott um páskana og njótið þess að vera til.

P.S Þið megið endilega kvitta og skrifa nafnið ykkar í comments til að við vitum hverjir eru að kíkja á okkur. (ætlum að reyna að setja einhverja gestabók en þangað til...comments).

Tilbúin!

.....og tadada, svaka flott!

Svo fín

Rakel komin í páskaklippinguna.....

Rakel og Pikachu



Arnar Ingi málaður sem Pikachu, Rakel var máluð sem páskaegg en var greinilega ekki nógu ánægð með útlitið svo að það var allt saman þvegið af um leið og hún gat.

Hádegismaturinn

Heilsudrykkurinn okkar....á milli þess sem við hámum í okkur nammi.

Wednesday, 19 March 2008

Innrásarher

Arnar Ingi dundar sér með Lego og star wars dót.

Rakel að kafa í baði.

Úti að leika...og sjáið hvað Rakel er hrein og snyrtileg!

Fanný, Agnes og Guðrún litla á kaffihúsi.

Monday, 17 March 2008

Páskahretið er víst líka til í Svíþjóð

Mánudagur til mæðu

Hann byrjaði ekki vel þessi mánudagur. Ég búin að ná í þessa gubbupest frá Rakel fyrir utan það að ég hef ekkert náð að gubba.....bara með helv.... ógleðina í allan dag. Lág í rúminu og dottaði til kl. 17 og færði mig þá yfir í stofuna og kíkti á sjónvarpið. Líður aðeins betur núna.

Og ofan á allt það, er komið páskahret í Lundi! Alveg ótrúlegt! Vorum í 10°c hita og sól í gær og svo byrjar að snjóa í dag og er enn að snjóa! Þetta er sem sagt mesti snjór sem komið hefur í vetur og á að vera eitthvað hret áfram.
En eftir það kemur sumarið.....við segjum það allavega, lítum bara á björtu hliðarnar.

Ætla að fara að horfa á CSI, bless í bili.

Sunday, 16 March 2008

Í hjólreiðatúr í nágrenninu.

Kirkjugarður

Fórum í hjólatúr og kíktum á kirkjugarðinn og hjóluðum svo í bæinn.

Fengum okkur kakó, kaffi og súkkulaðiköku á Espresso House niðrí bæ.

Blogg fyrir Ásdísi

Jæja, nú er frúin aðeins byrjuð að blogga vegna þess hvað Ásdís er búin að vera ágeng! En ég lofa ekki að ég verði dugleg að blogga, kemur líklega í törnum hjá mér ef ég þekki sjálfa mig rétt!

Þegar pizzubaksturinn hófst á þessu heimili í gær þá tók sú stutta upp á því að gubba! Hún hafði verið að kvarta yfir magaverk fyrr um daginn og það var nammidagur í gær þannig að við vorum viss um að nú hefði hún borðað yfir sig af nammi. Og enn vitum við ekki hvort sú var ástæðan eða hvort hún hafi verið með einhverja gubbupest. Alla vega er hún hress og kát núna og vill bara fá að klára nammið sitt frá í gær.

En partýið gekk vel og nú eru svíar komnir með með framlag í eurovision keppnina í ár. Það var hún Charlotte sem sigraði. Þið munið nú kannski eftir henni því hún vann hana Selmu okkar hér um árið (1998?). Vá! eru virkilega 10 ár síðan! En það var svaka fjör og gaman í gær.

Stefnan tekin á rólegan dag og kannski smá hjólatúr með börnunum. Þurfum reyndar að skreppa í garðyrkjubúð og kaupa nokkur tré í garðinn okkar, það eru líklega 5-6 tré dauð í hekkinu okkar og best að fylla í eyðurnar. Kannski gerum við það í dag, hver veit!

Veðrið er fallegt, reyndar svaka þoka þegar við vöknuðum (Rakel var vöknuð 6:30) en nú er að birta til og sólin að kíkja fram.

Hafið það gott í dag, það ætlum við að gera.

Saturday, 15 March 2008

Hluti af gestunum voða einbeittir að horfa á melodi festivalen (eurovison).

Melody festivalen

Inga, Jón, Emilía, Ronja, Ragnheiður, Minni og Guðrún litla.

Kastali

Arnar Ingi með sandkastala í byggingu, búinn að gera síki í kringum.

Laugardagur

Annan hvern laugardag förum við með börnin í kirkjuskólann í Lundi. Þetta er á vegum íslensku kirkjunnar í Svíþjóð og stundum kemur prestur í heimsókn. Það er alltaf sungið smá, hlustað á sögu (með boðskap) og svo er smá brúðuleikhús. Auðvitað er þetta allt með kirkjulegu ívafi. Að lokum fá börnin límmiða í kirkjubókina sína og smá drykk og sætt.

Svo ætlum við að halda pizzupartý í kvöld fyrir íslendingahópinn hérna. Við verðum fjórar fjölskyldur ásamt öllum barnaskaranum (reyndar tvær fjölskyldur í hópnum farnar til Íslands).
Í kvöld er líka úrslitakvöld í sænska eurovision þ.e hvað lag svíarnir ætla senda út í eurovision. Þetta er víst rosastórt kvöld hjá svíum og allir horfa spenntir á. Og það ætlum við líka að gera, höfum aðeins fylgst með undan undan úrslitunum og þeir eru bara flottir á því svíarnir!

En ætla að fara að skella mér í pizzubaksturs undirbúning. Hafið gott laugardagskvöld!

Kirkjuskólinn

Sungið og dansað í kirkjuskólanum.

Friday, 14 March 2008

Afmæli

Arnar Ingi fór í 7 ára afmæli Birkis í bowlingsalnum í dag.

Nýr lampi

jæja, hvernig líst ykkur á nýja lampann okkar....ég er voða hrifin af honum. Heitir Miss K, er líka með dimmer og er alveg hrikalega flottur þegar það er komið myrkur úti. Sem sagt....kaup dagsins í dag.

Rakel í leikskólanum.

Wednesday, 12 March 2008

Fellini

Sunday, 9 March 2008

Her djöfulsins

Påhängcykel

Thursday, 6 March 2008



Heimilið og garðurinn sýning í Malmö.


Turning torso þegar lengdin er mæld




Wednesday, 5 March 2008

Borg



Sjóræningi í sjónprófi



Tuesday, 4 March 2008

Snjór í Lundi!

Þá kom að því! Það kom snjór í Lundi. Var reyndar farinn um miðjan dag en kominn aftur morguninn eftir. Og brjáðnaður um hádegi. Þetta er sem sagt snjór vetrarins!


Monday, 3 March 2008

Páskaland



Vellinge



Saturday, 1 March 2008

Hlustað á sögu í kirkjuskólanum.