Páskadagur var bara þessi fíni dagur. Börnin byrjuðu að spyrja um páskaeggið snemma og fljótlega eftir morgunverð þá földum við páskaeggin þeirra og því fylgdi mikil spenna og skemmtun að leita að þeim.
Svo var sest að snæðingi þ.e páskaeggjasnæðingi.
Foreldrarnir fengu sömu meðferð með sín páskaegg, þurftum að leita og svo fljótlega var eggið opnað og við helltum okkur á kaf í át.
Eftir allt sykursjokkið drifum við okkur út í göngutúr og á leikvöll. Veðrið var mjög fallegt, logn, sól en hiti bara í frostmarki.
Svo var komið inn, borðað smá og svo aftur á kaf í páskaeggin. krakkarnir drifu sig svo út að leika við vini sína og ég fór að stússast í lambalærinu og búa til eftirrétt.
Ummmm.......kvöldmaturinn var svo góður.....íslenskt lambalæri, brúnaðaðar kartöflur og tilheyrandi. Og eftirrétturinn...nammm....svaka góður.
Svo var ekki hægt að gera neitt annað en leggjast smá útaf með útþaninn maga eftir át dagsins. Það tekur sko á að borða svona svakalega. En smá átak eftir páska, vonandi!
Monday, 24 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Gleðilega páska elskurnar!!
Kvitt kvitt ég vil ekki vera ein af skítapakkinu sem kvittar ekki..hehehe
Elsa ég er ekkert smá ánægð að sjá hvað þú ert orðin dugleg í blogginu, gott að heyra að það eru fleiri en ég og mín fjölskylda sem að liggja í namminu og óhollustunni..
Annars allt gott að frétta af okkur bíðum bara eftir vorinu og komin með mikið meira en nóg af snjó og kulda...
Bestu kveðjur úr Fannahvarfinu
Guðrún & Family
Við erum líka búin að vera ROSA "dugleg" í átinu!!!!
Þú ert sko alveg að standast blogg væntingar mínar!! hehehehe
kv.Ásdís
Post a Comment