Tuesday, 25 March 2008

Fríið búið

Nú er páskafríið búið og hversdagsleikinn tekinn við. Skólinn byrjaður hjá okkur og vinnan hjá Helga. Ég ætla nú samt að hafa smá páskaskraut heima hjá okkur út vikuna. Þori varla að segja það en páskaeggin á heimilinu eru öll að klárast....kannski eins gott!

Ég er byrjuð á námskeiði 2 í sænsku (hvert námskeið er 4 vikur) og það eru ekkert nema grikkir nánast á þessu námskeiði. Þau eru átta. Svo byrjar ein íslensk stelpa í næstu viku, hún var líka á námskeiði 1. Það er kínversk stelpa, einn frá Írak og ein frá Kýpur. Veit að það koma einhverjir fleiri á morgun og það verður spennandi að vita hvaðan þau koma. En þetta er bara voða gaman þó svo ég viti ekki hvað ég læri mikið af þessu. Mér gengur vel með málfræðina og að skrifa stíla en það sem ég þarf er að æfa talið, samræður. Við erum svo stór íslendingahópur hérna að við tölum alltaf íslensku. Svo þegar ég er ekkert að vinna úti þá æfist maður ekkert í sænskunni. Tala auðvitað aðeins við kennarana hjá krökkunum og svoleiðis en það er svo stutt alltaf.

Styttist í að mamma og Sigrún Karls. komi í heimsókn...bara 5 dagar....hlakka til!

1 comment:

Anonymous said...

Það var mjög gaman að heyra að þú værir á námskeiði.
Ég er hlynntur allri mentun hverrar
ættar,sem hún er.
Á hinn bóginn vorkenni ég ykkur ekkert þó þið fáið svolítið kuldakast það er bara gott á ykkur!!
mbk.Afi