Jæja, þá erum við búin að sjá alla seríuna af næturvaktinni. Og þvílík snilld! Þessir þættir fengu mig til að hlæja allan tímann, og ekki skemmdi fyrir þessi Lundar vinkill sem kom ítrekað fram. Leikurinn fannst mér stórgóður, og handritið frábært (eða spuninn, hvort sem vóg nú þyngra).
Það var s.s. horft á Næturvaktina í staðinn fyrir að hafa vöffluboð. Nágrannakonan hringdi í morgun og sagði kallinn væri kominn með einhverja pest og þau kæmust ekki.
1 comment:
Þessir þættir eru bara snilldin ein!!! við keyptum seríuna strax þegar hún kom út og sjáum ekki eftir því:)
kv.Ásdís
Post a Comment