Thursday, 20 March 2008

Skírdagur

Þessi dagur er mjög skemmtilegur fyrir börn hérna í Svíþjóð. Það er gömul hefð að klæða sig upp sem lítil kerling, vera með slæðu og í pilsi og ganga í hús og óska gleðilegra páska. Þá annað hvort fá krakkarnir nammi eða pening.

Arnar Ingi setti á sig slæðu en var reyndar málaður í framan eins og Pikachu (Pokémon) og Rakel setti á sig slæðu og fór í pils. Svo gengu þau um hverfið og bönkuðu uppá og sungu fyrir fólkið.
þau komu heim hlaðin nammi og með eitthvað af pening og einn átti ekkert nammi og gaf þeim frosna pizzu! Um að gera að redda sér og svekkja ekki börnin.

Búinn að vera fínn dagur, fallegt veður, logn og sól en kalt, um 2°c. Spáin er reyndar ekkert sérstök, fáum einhverja lægð, kannski frá Íslandi? þannig að það verður kuldi og eitthvað rok á morgun.

Reyndar eru páskarnir hérna ekkert sérstaklega heilagir. Í dag var bara venjulegur dagur, allar búðir opnar, leikskólar og frístundaheimili. Margar matvöruverslanir eru opnar alla páskana og einnig "Mallin" (Kringlan). En síðasti skóladagurinn var föstudaginn í síðustu viku þannig að börnin voru byrjuð í páskafríi. Þeir sem þurftu svo á að halda höfðu börnin á frístundaheimili og í leikskólanum því allt annað er opið! Reyndar eru svíar mjög fjölskylduvænir og reyna að taka frí með börnunum þegar það eru skólafrí, jólafrí og páskafrí.

Núna sitja börnin og borða nammi og telja dagana þangað til þau fá íslenska páskaeggið sitt!

Hafið það gott um páskana og njótið þess að vera til.

P.S Þið megið endilega kvitta og skrifa nafnið ykkar í comments til að við vitum hverjir eru að kíkja á okkur. (ætlum að reyna að setja einhverja gestabók en þangað til...comments).

1 comment:

Anonymous said...

Enn skemmtileg hefð hjá svíunum:)
Hafið það rosa gott um páskana:)
kv.Ásdís