Friday, 28 March 2008

Föstudagur!!

Þá er enn ein vikan liðin og nú er sko vor í lofti í Lundi. Búið að vera sól í allan dag og núna er 8°c hiti.
Fórum í bæinn og á kaffihús, Espresso House, sem er nánast eina kaffihúsið hérna! Alla vega er það á mörgum stöðum og með gott úrval af kaffi og sætabrauði, það eru líka seldar alls konar samlokur og gotterí...ummmm.

Í kvöld er svo úrslitaþátturinn af Let's dance! sem er þannig að það eru búin að vera fullt af "pörum" að keppa í alls kyns dansi. Pörin eru samansett af einum lærðum dansara og svo einum einhverjum frægum svía, t.d var einn af Herreys bræðrum, ef þið munið eftir Diggilu, diggiley eurovision laginu í gamla daga, þrír gaurar í gylltum skóm! Ég man svo vel eftir þeim.

Helgin svona "lagom" plönuð (smá sænsku sletta fyrir Hafdísi). Barnaafmæli hjá Rakel, kirkjuskóli hjá börnunum og svo verðum við kannski með kaffi eða matarboð á morgun fyrir nágranna okkar. Vitum það fljótlega, hann er læknir og þarf kannski að vinna.

Bara 2 dagar í mömmu og Sigrúnu, bíð spennt! Þær ætla líka að koma með alls konar íslenskar kræsingar með sér....ekki verra!

Hafið það gott um helgina og njótið þess að vera í fríi.

3 comments:

Anonymous said...

Ekki verra að vera komin í fjarnám í sænsku :o) Hvað þýðir svo lagom ? Ég giska á löngu... Spurning hvort að ég verði svo ekki taka tíma í verklegu eftir að vera búin að vera í fjarnámi í x-tíma. Njótið ykkar um helgina ..
Kv. af Skaganum

Elsa M. Finnsdóttir said...

Hafdís...lagom þýðir mátulega. Glósa það niður svo þú vitir næst hvað það þýðir. :) Kv. Elsa

Anonymous said...

O hvað ég væri til í að finna vor í lofti!!!:)
Ertu búin að heyra í 15 ára strákknum sem vann x facotor í DK í gærkvöldi? hann er geggjaður!!

http://www.youtube.com/watch?v=goi2lZE9lPg Getur kíkt á þessa slóð:)
kær kveðja Ásdís