Wednesday, 30 April 2008

Stokkhólmur - erum á leiðinni!

þá er að koma að því! Á morgun förum við Helgi í brúðkaupsafmælisferð til Stokkhólms og verðum í 3 daga. Gaman!!

Fórum í smá búðarráp í svona skran/heimilisvörubúðir og það var einhver sem keypti mest, hver ætli það hafi verið? Tölum ekkert meira um það!

Ég verslaði gúmmístígvél í dag og skellti mér svo í það að slá grasið í garðinum enda ekki seinna vænna, komið dágóður vöxtur og það hefði í sjálfu sér þurft að slá fyrir viku. Fórum svo og keyptum sumarblóm til að setja í potta og hafa úti.

Krakkarnir búnir að vera úti að leika sér í nánast allan dag, hjóla, vera á hlaupahjóli og fóru svo að vökva blómin og tréin í garðinum hjá okkur.

Ætla að fara skella einhverju ferðadóti í tösku og svo förum við í fyrramálið! Bless í bili.

Tuesday, 29 April 2008

Kósí stund

Rakel lagðist í fangið á ömmu sinni og lét hana strjúka hárið meðan hún horfði á barnatímann.

Sænskar kjötbollur

Boðið var upp á sænskar kjötbollur, kartöflumús og brúna sósu. Allir ánægðir með það.

Heimsókn

Þá er mannskapurinn kominn í heimsókn til okkar. það byrjaði nú ekki vel hjá þeim því að vélin sem átti að fara kl. 7:15 um morguninn var biluð! En þau mættu út á flugvöll kl. 5:30 þreytt og lítið sofin. Athuga átti svo með vélina kl. 15:30. Jæja, dagurinn leið hjá þeim úti á flugvelli og flest allt lokað þar meðan engar vélar voru á leiðinni í loftið, en á endanum fór vélin svo kl. 16:20. Langur dagur fyrir smáfólkið (reyndar líka hina eldri). Þau komu svo hingað heim í hús kl. 22:30 á okkar tíma (20:30 ísl.tími).

Gærdagurinn var svo tekinn rólega, sátum úti í garði í 18°c hita, sól en hávaða roki. Sóttum Arnar Inga og Rakel kl. 14:00 í skólann og þá loksins fengu krakkarnir að hittast! Þau skemmtu sér mjög vel saman og léku mikið.

Núna er hópurinn farinn í bæinn að skoða sig um. Aftur sól, hiti og hávaðarok!

Saturday, 26 April 2008

Magnus og Matilda í mat


Fengum nágranna okkar í mat, Við vorum með þessa fínu gúllassúpu sem var afbragðsgóð. Þau eru bæði læknar og þekkja að sjálfsögðu fullt af Íslendingum, enda eru þeir (íslendingarnir) búnir að dreifa sér um allt heilbrigðiskerfið hér í suður Svíþjóð.

Scream gríman


"En hvað þetta er ógeðsleg mynd af honum" sagði Elsa, "hann er eins og Scream gríman!"

"Köka"


Bökuðum hnetuköku og borðuðum...voða góð!

Grilldagur í kirkjuskólanum


Við fórum í morgun í kirkjuskólann í síðasta skiptið fyrir sumarfrí skólans. Haldið var upp á daginn með pylsuveislu og leikjum fyrir krakkana.

Friday, 25 April 2008

Föstudagur - aftur!

Þá er enn ein vikan liðin....alveg ótrúlegt! Veðrið í vikunni búið að vera alveg frábært og í dag var 17°c hiti, logn og mistur, veit ekki hvernig hefði verið ef sólin hefði skinið líka. Spáin er góð áfram.

Svo er það kirkjuskólinn í fyrramálið en það er síðasta skiptið fyrir sumarið, byrjar svo aftur í haust. Það verður nú bara grillað og haft gaman af.

Nágrannar okkar koma svo í kvöldmat til okkar á laugardagskvöldið, þau eru sænsk.

Helgi ætlar í golf á sunnudagsmorguninn og fer svo út á flugvöll að sækja liðið! Já, mamma, Hulda, Ólöf Björk, Íris Ösp og Finnur Gauti eru að koma á sunnudaginn og lenda um hádegið og ætla að vera hjá okkur í 10 daga. GAMAN! Og þetta þýðir líka að við Helgi förum til Stokkhólms í næstu viku í brúðkaupsafmælisferð! FRÁBÆRT!

En góða helgi gott fólk, hafið það rosa gott!

Wednesday, 23 April 2008

Miðvikudagur

Magga og Björn Ingi kíktu á okkur í gær og við erum að plana að fara í sumarhús saman í júlí. Við ætluðum að fara til Öland sem er eyja suð austan við okkur. En það er bara allt orðið fullt þar. Þannig að núna erum við að kíkja á sumarhús í Danmörku. Erum með nokkur hús sem við erum að skoða núna.

Við fengum Emelie barnapíuna okkar til að passa í gær og við hjónin fórum út að borða. Rakel var farin að bíða eftir Emelie sem mér finnst góðs viti því að hún var að koma í annað skipti að passa. Börnin voru líka mjög ánægð með hana og föndruðu, sýndu dótið sitt og sögðu frá ýmsu.

Við fórum út að borða á Ochbar (sem þýðir einfaldlega Og bar) og þetta er í annað sinn sem við förum þangað. Fyrra skiptið var árið 2005 þegar við kíktum í heimsókn til Minna og Agnesar í kringum 1.árs brúðkaupsafmælið okkar. Síðan það árið fórum við til Kaupmannahafnar og gistum á því fræga hóteli D' Anglaterre sem er núna í eigu íslendinga.
En alla vega var maturinn góður og gaman að fara svona saman út að borða.

Ætlum að fara á eftir í bíó með krakkana að sjá Horton, þau eru spennt því að þau hafa aldrei farið í bíó í Svíþjóð, núna getum við farið því þau eru orðin svo góð í sænsku.

Enn og aftur er veðrið æðislegt, alveg heiðblár himinn og 12°c í skugga (mælirinn okkar er á norðurhlið hússins).
Hafið það gott í dag!

Monday, 21 April 2008

Heiðskírt

Veðrið er alveg frábært núna, heiðskírt og glampandi sól, 11°c og við vorum að leita að einhverju skýi í kringum okkur en það finnst ekki. Tókum bara mynd af flugvél í loftinu svo að það sjáist einhverjar litabreytingar, svo gægist þakskeggið á húsinu okkar aðeins inn á myndina.

Sunday, 20 April 2008

Hjólatúr

Fórum smá hjólatúr í hverfinu í morgun og kíktum á kindur og hænur.


Veðrið búið að vera alveg geggjað eftir hádegi, sól og 13°c og alveg logn. Fyrsti alvöru sumardagurinn. Helgi fór í golf með Birni Inga og Val í morgun og svo erum við búin að sitja úti í garði og hafa það gott. Rakel farin í heimsókn til vinkonu og Arnar Ingi úti að blása sápukúlur.


Ætlum að grilla svínalundir í kvöldmatinn og jafnvel bara borða úti ef blíðan heldur svona áfram. Reyndar alveg frábær veðurspá fyrir vikuna og vonandi stenst spáin.

Saturday, 19 April 2008

Kaffiboð

Helga og Arnar kíktu í kaffi ásamt sonum sínum Þorra og Óðni.

Arnar var með mér á námskeiði 1 í sænsku. Svo kemur í ljós þegar þau koma að Helga konan hans er árbæingur! Ótrúlegt! Við byrjuðum auðvitað að rifja upp árbæjartíð og hverjir eru hvaða vinir og þess háttar....bara gaman. Óðinn sonur þeirra er jafngamall Arnari Inga og þeir fóru strax að leika sér saman. Þorri er svo 13 ára, mjög kurteisir og fínir drengir.

Góður dagur, fallegt veður, sól og 11°c hiti. Rakel er farin í heimsókn til nágrannana og þegar búin að koma aftur til okkar og segja að hún ætli að borða hjá þeim kvöldmat! Alltaf söm við sig :)

Friday, 18 April 2008

Kelisæti

Fórum í bíó og sátum á aftasta bekknum (af 7 sætaröðum, salur 2) og þar eru svona tvöföld sæti, aldrei séð svona áður. Bíóin hérna í Svíþjóð eru nú frekar gamaldags og lúin. Við íslendingar erum svo vanir góðum og flottum bíóum. Krakkarnir hrifnir af barnapíunni og við ætlum að fara út að borða í næstu viku og fá hana til að passa aftur.

Wednesday, 16 April 2008

Axel í heimsókn

Axel kom með Rakel heim úr leikskólanum í dag. Þau á leikskólanum sögðu að það væri eitthvað skot í gangi :)

Þau sögðu svo við mig að þau ætluðu að gifta sig! Sætt! Fyrsta ástin. Þau hafa reyndar alltaf náð vel saman á leikskólanum og leika mikið saman þar. Rakel er alla vega mjög rík af vinum....endalausar heimsóknir bæði til hennar og svo er hún dugleg að fara og hitta vinina.

Miðvikudagur

Ekki mikið að gerast þessa dagana, lífið gengur sinn vanagang.
Fórum í morgunkaffi í leikskólanum hjá Rakel og hún voða ánægð með það.

Helgi er duglegur að fara í golf með Birni Inga og er líka búið að vera veðrið til þess.

Við erum reyndar ennþá með vetrardekkin undir bílnum og alltaf á leiðinni að skipta. Reyndar er dekkjaþjónustan sem við notum með sumardekkin okkar á "dekkjahótelinu" hjá sér. Rosalega þægilegt, komum bara á bílnum, bíðum eftir að það sé skipt um dekk og þeir geyma svo dekkin þangað til við komum aftur. Reddum þessu með dekkin í dag!

Ætlum í bíó í kvöld, fundum barnapíu sem við ætlum að prófa að láta passa í kvöld, okkur líst alveg svakalega vel á hana. Tvítug stelpa frá Stokkhólmi, með einhverja kennaramenntun og á fjögur systkini á aldrinum 4-11 ára og virðist alveg elska börn. Gaman að sjá svo hvernig börnunum líkar við hana.

Styttist í Stokkhólmsferðina hjá okkur Helga. 10 ár frá því að við kynntumst og 4 ár frá því við giftum okkur, þann 1.maí. Já, tíminn líður hratt.....á gervihnattaöld!
Hafið það gott í dag!

Aðeins seinna......smá breyting, okkur er boðið í mat í kvöld til Ragnheiðar og Rafns þannig að bíóferðin verður annað kvöld í staðinn.

Monday, 14 April 2008

Brandari

Svandís sendi mér þennan, góður.

Einu sinni voru tvær nunnur á gangi í gegnum skóginn.
Önnur þeirra gekk undir viðurnefninu Systir Stærðfræði (SS), En hin var kunn undir viðurnefninu Systir Rökrétt (SR).
Það var farið að dimma og þær áttu ennþá langt eftir á áfangastað.
SS: Hefurðu veitt því athygli að síðustu 38 og hálfa mínútu hefur okkur verið veitt eftirför af einhverjum manni? Ég velti því fyrir mér hvað hann ætli sér.
SR: Það liggur ljóst fyrir að hann ætlar sér að gera okkur eitthvað.
SS: Almáttugur minn! á þessum tímapunkti mun hann ná okkur innan 15 mínútna hið minnsta! Hvað getum við gert?
SR: Það eina rökrétta í stöðunni er auðvitað að labba hraðar.
Stuttu síðar:
SS: Það er ekki að ganga upp.
SR: Auðvitað er það ekki að ganga upp. Maðurinn gerði það eina rökrétta í stöðunni. Hann fór líka að labba hraðar.
SS: Hvað eigum við þá að gera? Á þessari stundu mun hann ná okkur innan einnar mínútu.
SR: Það eina rökrétta í stöðunni fyrir okkur er að fara sitt í hvora áttina. Þú ferð þessa leið og ég tek hina leiðina. Þá getur hann ekki elt okkur báðar.
Því næst ákvað maðurinn að elta Systur Rökréttu. Systir Stærðfræði komst á áfangastað heilu á höldnu en hafði áhyggjur af því hvernig Systur Rökrétt hefði reitt af. Eftir nokkra mæðu kemur Systir Rökrétt loks á áfangastað.
SS: Systir Rökrétt ! Guði sé lof að þú sért komin! Hvað gerðist?
SR : Þar sem maðurinn gat eðlilega ekki elt okkur báðar, þá valdi hann þann möguleika að elta mig.
SS: Já, Já! En hvað gerðist svo?
SR: Nú ég reyndi að hlaupa eins hratt og ég gat, en þá fór hann einnig að hlaupa eins hratt og hann mögulega gat.
SS: Og?
SR: Það eina rökrétta gerðist á þessum tímapunkti. Hann náði mér.
SS: Guð minn góður! Og hvað gerðir þú?
SR: Það eina rökrétta sem ég gat gert og gerði.. Ég lyfti pilsi mínu upp.
SS: Oh, vesalings Systir! Hvað gerði maðurinn?
SR: Það eina rökrétta fyrir hann í stöðunni. Hann gyrti niður um sig.
SS: Æii, nei!! Hvað gerðist svo?
SR : Liggur það ekki í augum uppi, Systir? Nunna með pilsið upp um sig hleypur hraðar en maður með buxurnar á hælunum.

Og fyrir ykkur sem hélduð að þetta yrði eitthvað dónalegt og svæsið, bið ég fyrir ykkur !

Sunday, 13 April 2008

Sunnudagur

Björn Ingi og Magga í heimsókn.

Þetta er búið að vera átdagurinn mikli. Fórum í afmæli kl. 11 í morgun og byrjuðum át. Brauðmeti og girnilegar kökur, algjört æði.

Veðrið búið að vera alveg meiriháttar í dag 12-13°C hiti og maður finnur að vorið er greinilega komið því að vindurinn var nokkuð hlýr líka. Krakkarnir búnir að vera úti í allan dag. Fengum gesti í kaffi og aftur....mikið át! Arnar Ingi kom heim kl. 18:30 og fór að spila Nintendo Wii við Ragnar Helga sem hann (Ragnar) fékk í afmælisgjöf í gær og kom með hingað. Rakel lét rétt svo sjá sig seinnipartinn til að háma í sig muffins og var svo rokin út aftur. Kom svo heim kl. 19:30 og þá búin að vera í mat hjá nágrannanum!

Veðrið í gær var líka glimrandi en aðeins kaldari vindurinn og ég var í garðavinnu í gær að reyta arfa, bakaði smávegis og hafði það gott og glápti á imbakassann í gærkvöldi.

Á morgun byrjar svo enn ein vikan, ótrúlegt hvað dagarnir, já og vikurnar fljúga áfram.

Afmæli Daníels

Daníel 6 ára.

Friday, 11 April 2008

Helgin

Nú er Helgi farinn til Kaupmannahafnar að hitta vinnufélaga, fara út að borða og djamma smávegis. Hann kemur svo aftur eftir hádegi á laugardag.

Kirkjuskóli á laugardagsmorgunn, út í búð að velja nammi í poka og svo borða nammi. Ekkert meira planað þann daginn nema kannski baka smávegis. Erum reyndar alltaf eftir að fara að kaupa tréin í garðinn sem við ætlum að planta, kannski kaupum við tréin eða ekki!!

Sunnudagurinn er aðeins meira "bissí". Um hádegið fer Rakel í afmæli hjá skólafélaga sínum og við förum á meðan í afmæli til Daníels sem verður 6 ára og er sonur Ingu og Baldurs. Seinna um daginn erum við með kaffiboð heima hjá okkur.

Ætlum að njóta helgarinnar og greinilega borða mikið, nammi,namm. Góða helgi, gott fólk!

Thursday, 10 April 2008

Köben ferð

Skruppum snemma í morgun til Kaupmannahafnar til að fá nýtt vegabréf fyrir Rakel. Best að hafa allt svona á hreinu áður en haldið verður til USA. Fórum í íslenska sendiráðið og þar var tekin mynd af Rakel og svo fáum við bara sent vegabréf heim, svaka þægilegt.

Eftir það gengum við um hverfið og fengum okkur hádegisverð á Segafredo og vorum mjög sátt. Svo þurfti auðvitað að fá sér smá ís í "ferðalaginu". Við fórum í búð og keyptum skyr því það er hægt að fá "íslenskt" skyr sem er reyndar framleitt i Danmörku (heitir Skyr og er frá skyr.is)með jarðaberjabragði og svo blanda sem er perur og bananar. Alveg ágætis skyr en ég er alltaf svo hrifin af vanilluskyrinu og bláberjaskyrinu á Íslandi og sakna þess svolítið. Reyndar kom mamma með vanilluskyr síðast og það var nú ekki lengi að klárast....krakkarnir líka vitlausir í það.

Sól og blíða og við komin í sumarskap og settumst út í garð með "kaffibollann" en reyndar sáum við geitung og svo eru kóngulærnar farnar að hressast. Tók aðeins til í geymslunni og bílskúrnum þ.e raðaði hlutunum og kom betur fyrir, nennti ekki í eitthvað "hverju á að henda" tiltekt.

Rakel úti og hjólar og hjólar, blæs sápukúlur og krítar á gangstéttina. Allt voða sumarlegt, en það á reyndar eitthvað að kólna en vonandi er það bara vitleysa hjá veðurfræðingunum. Kemur bara í ljós eins og svo oft áður. Bless í bili.

Hjá íslenska sendiráðinu í Köben

Segafredo Ama'r

Passamyndin að verða til

Við kíktum til Köben í dag til að panta nýjan passa fyrir Rakel

Wednesday, 9 April 2008

Ameríka

Nú er allt að smella saman með Ameríkuferðina okkar. Við ákváðum fyrir löngu að fara til Minneapolis að heimsækja fólk þar sem við þekkjum og pöntuðum okkur flugfar. Við förum 15.maí og verðum til 27.maí. Í gær settumst við svo niður og pöntuðum okkur hótel. Við ætlum að vera í 4 nætur hjá vinafólkinu og svo ferðast aðeins norður til Duluth (held það sé nafnið) og vera þar í 3 nætur. Duluth liggur við vatn og ýmislegt hægt að gera með börnunum.

Síðan verður stefnan tekin á Minneapolis í 5 nætur og hótelið sem við pöntuðum er beint á móti Mall of America. Við ákváðum að vera þar því að það er hægt að gera allt þar og gott að vera í göngufæri ef við nennum ekki að keyra neitt annað.
Það er hægt að fara í tívolí, bíó, minigolf og ég veit ekki hvað meira eiginlega. Svo eru auðvitað alveg allt morandi í veitingastöðum þarna og við ættum nú líklega að finna eitthvað við allra hæfi.
Og svo er ekki verra að geta kíkt pínu í búðir....við ætlum nú að kíkja á leikföng fyrir krakkana, svo ódýrt í Ameríku!

Það eina sem við erum ekki búin að panta er bílaleigubíll en það ætti nú ekki að vera mikið mál að fá, alltaf hægt að fá bílaleigubíl. Bara rétt rúmur mánuður í ferðina....hlakka til!

Monday, 7 April 2008

Saumaklúbbur

Guðjón og Guðrún eru með okkur í saumaklúbb þessa mánuðina. Alltaf gaman í saumaklúbb og þessi tvö eru svo góð! Hafa nú verið með okkur í saumaklúbb í 5 mánuði.

Sunday, 6 April 2008

Star Wars Clone

Við feðgarnir fórum á Sci-Fi "ráðstefnu" í Malmömässan. Þetta voru nú aðallega sölubásar með annaðhvort plakötum eða Star Wars fígúrum. En Arnar hitti þarna nokkra klóna og fór í Laser-tag.

Saturday, 5 April 2008

Hver ert þú?

McDonalds í Lundi

Namm,namm....ís í eftirrétt.

Rakel að jappla á gulrót.

Rakel að búa til afmæliskort fyrir afmæli Axels....fín hæna hjá henni.

Arnar Ingi í afmæli Alexanders.

Hjólatúr.

Á heimleið

Þá eru mamma og Sigrún á heimleið. Það er þvílíkt hvað vikan líður hratt. Það er búið að vera mjög skemmtilegur tími hjá okkur þessi vika og alltaf gaman að fá gesti. Mamma ætlar ekki að vera lengi í burtu frá okkur því að hún kemur aftur eftir 3 vikur ásamt Huldu, Ólöfu Björk, Írisi Ösp og Finn Gauta....það verður gaman að fá þau og við fáum að hafa þau hjá okkur í 10 daga. Reyndar ætlum við líka að nýta okkur aðstæðurnar og fara í brúðkaupsafmælisferð til Stokkhólms 1-3 maí og þá skiljum við börnin eftir hjá gestunum! Góð!

Helgi kom úr vinnuferð sinni frá Stokkhólmi í gær og fékk að æfa sig ágætlega í sænsku í ferðinni. Ánægður með það!

Arnar Ingi á leið í afmæli í dag, ég fer í saumaklúbb á morgun en annars ekkert sérstakt planað þessa helgina, látum það bara ráðast! Góða helgi gott fólk!

Wednesday, 2 April 2008

Fyrsta tönnin farin!

Rakel er svo stolt! Tönnin búin að vera laflaus í 2 daga og datt loksins í dag. Þegar Rakel var sótt í leikskólann þá heilsaði hún ekki, heldur opnaði munninn og sýndi skarðið. Leikskólakennararnir sögðu að hún væri búin að sýna öllum og væri alltaf að kíkja í spegilinn. Þegar við komum svo heim fór hún að ganga í húsin í götunni og sýna hvar tönnin hafði verið :)

Rakel fékk Elinu vinkonu sína í heimsókn og Arnar Ingi fékk Johan bróður Elinar í heimsókn. Það skemmtilega við það er að þessi systkin bjuggu í húsinu okkar áður en við keyptum það. Elin er með Rakel á leikskóladeild og Johan er einu ári eldri en Arnar Ingi en þeir eru í sama skólastofuhluta. Næsta haust verða þeir saman í skólastofu því að 6-7 ára eru saman og 8-9 ára eru saman í stofu. Þannig að nú býr Rakel í Elinar herbergi og Arnar Ingi í Johans herbergi. Pabbi þeirra kom og sótti þau í dag til okkar en hann hafði ekki sótt þau áður, alltaf mamman. Pabbinn var mjög spenntur og labbaði um allt hús og skoðaði.

Fórum á smáþvæling, ég, mamma og Sigrún í dag og auðvitað náði ég að eyða pening....en nú er ég líka búin að eignast nýjar buxur, skyrtu og peysu, en mamma og Sigrún gáfu mér reyndar peysuna.... takk fyrir mig!

Góður dagur í dag, veðrið alveg frábært, sólarglæta, 12°c og logn. Spáin mjög góð fyrir næstu 2 daga en svo verða einhverjir skúrir um helgina....vona bara að það rætist ekki! Það er komið þvílíkt líf og fjör í mannskapinn og krakkar út um allt að leika sér úti. En það er greinilegt að vorið er komið og vonandi er bara stutt í sumarið hérna.

Ekki Espresso House!

Kominn til Stokkhólms

Helgi mættur í vinnuferð til Stokkhólms.

Tuesday, 1 April 2008

Tadaaa!

Bon appetit !


Íslenskt lambalæri með tilheyrandi. Afmæliskvöldverður Sigrúnar.

Sigrún sextug


Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Sigrún, hún á afmæli í daaaag!! Til hamingju með daginn Sigrún!

Desertinn undirbúinn