Wednesday, 23 April 2008

Miðvikudagur

Magga og Björn Ingi kíktu á okkur í gær og við erum að plana að fara í sumarhús saman í júlí. Við ætluðum að fara til Öland sem er eyja suð austan við okkur. En það er bara allt orðið fullt þar. Þannig að núna erum við að kíkja á sumarhús í Danmörku. Erum með nokkur hús sem við erum að skoða núna.

Við fengum Emelie barnapíuna okkar til að passa í gær og við hjónin fórum út að borða. Rakel var farin að bíða eftir Emelie sem mér finnst góðs viti því að hún var að koma í annað skipti að passa. Börnin voru líka mjög ánægð með hana og föndruðu, sýndu dótið sitt og sögðu frá ýmsu.

Við fórum út að borða á Ochbar (sem þýðir einfaldlega Og bar) og þetta er í annað sinn sem við förum þangað. Fyrra skiptið var árið 2005 þegar við kíktum í heimsókn til Minna og Agnesar í kringum 1.árs brúðkaupsafmælið okkar. Síðan það árið fórum við til Kaupmannahafnar og gistum á því fræga hóteli D' Anglaterre sem er núna í eigu íslendinga.
En alla vega var maturinn góður og gaman að fara svona saman út að borða.

Ætlum að fara á eftir í bíó með krakkana að sjá Horton, þau eru spennt því að þau hafa aldrei farið í bíó í Svíþjóð, núna getum við farið því þau eru orðin svo góð í sænsku.

Enn og aftur er veðrið æðislegt, alveg heiðblár himinn og 12°c í skugga (mælirinn okkar er á norðurhlið hússins).
Hafið það gott í dag!

2 comments:

Anonymous said...

Fórum á Horton um daginn og vorum alveg að fíla hana:)

Vá hvað börnin þín eru dugleg!! orðin góð í sænskunni, þau eru heppin að fá þetta tækifæri að búa öðru landi og læra nýtt tungumál:)
kv.Ásdís

Anonymous said...

Frábært að góða veðrið sé komið vona að það verði líka svona gott þegar við komum í heimssókn. Frábært að þeið séuð komin með góða barnapíu. kv. Hulda, Villi og co.