Tuesday, 29 April 2008

Heimsókn

Þá er mannskapurinn kominn í heimsókn til okkar. það byrjaði nú ekki vel hjá þeim því að vélin sem átti að fara kl. 7:15 um morguninn var biluð! En þau mættu út á flugvöll kl. 5:30 þreytt og lítið sofin. Athuga átti svo með vélina kl. 15:30. Jæja, dagurinn leið hjá þeim úti á flugvelli og flest allt lokað þar meðan engar vélar voru á leiðinni í loftið, en á endanum fór vélin svo kl. 16:20. Langur dagur fyrir smáfólkið (reyndar líka hina eldri). Þau komu svo hingað heim í hús kl. 22:30 á okkar tíma (20:30 ísl.tími).

Gærdagurinn var svo tekinn rólega, sátum úti í garði í 18°c hita, sól en hávaða roki. Sóttum Arnar Inga og Rakel kl. 14:00 í skólann og þá loksins fengu krakkarnir að hittast! Þau skemmtu sér mjög vel saman og léku mikið.

Núna er hópurinn farinn í bæinn að skoða sig um. Aftur sól, hiti og hávaðarok!

No comments: