Thursday, 10 April 2008

Köben ferð

Skruppum snemma í morgun til Kaupmannahafnar til að fá nýtt vegabréf fyrir Rakel. Best að hafa allt svona á hreinu áður en haldið verður til USA. Fórum í íslenska sendiráðið og þar var tekin mynd af Rakel og svo fáum við bara sent vegabréf heim, svaka þægilegt.

Eftir það gengum við um hverfið og fengum okkur hádegisverð á Segafredo og vorum mjög sátt. Svo þurfti auðvitað að fá sér smá ís í "ferðalaginu". Við fórum í búð og keyptum skyr því það er hægt að fá "íslenskt" skyr sem er reyndar framleitt i Danmörku (heitir Skyr og er frá skyr.is)með jarðaberjabragði og svo blanda sem er perur og bananar. Alveg ágætis skyr en ég er alltaf svo hrifin af vanilluskyrinu og bláberjaskyrinu á Íslandi og sakna þess svolítið. Reyndar kom mamma með vanilluskyr síðast og það var nú ekki lengi að klárast....krakkarnir líka vitlausir í það.

Sól og blíða og við komin í sumarskap og settumst út í garð með "kaffibollann" en reyndar sáum við geitung og svo eru kóngulærnar farnar að hressast. Tók aðeins til í geymslunni og bílskúrnum þ.e raðaði hlutunum og kom betur fyrir, nennti ekki í eitthvað "hverju á að henda" tiltekt.

Rakel úti og hjólar og hjólar, blæs sápukúlur og krítar á gangstéttina. Allt voða sumarlegt, en það á reyndar eitthvað að kólna en vonandi er það bara vitleysa hjá veðurfræðingunum. Kemur bara í ljós eins og svo oft áður. Bless í bili.

1 comment:

Anonymous said...

vÁ ... Þetta hljómar svoldið eins og maí - júní hérna heima :o) Er ekki svoldið nice að skreppa til Köben ? Svona svipað og þegar að ég skrepp í Rvk ;o) eða ég tel mér trú um það.
Kv. Hafdís