Rakel er svo stolt! Tönnin búin að vera laflaus í 2 daga og datt loksins í dag. Þegar Rakel var sótt í leikskólann þá heilsaði hún ekki, heldur opnaði munninn og sýndi skarðið. Leikskólakennararnir sögðu að hún væri búin að sýna öllum og væri alltaf að kíkja í spegilinn. Þegar við komum svo heim fór hún að ganga í húsin í götunni og sýna hvar tönnin hafði verið :)
Rakel fékk Elinu vinkonu sína í heimsókn og Arnar Ingi fékk Johan bróður Elinar í heimsókn. Það skemmtilega við það er að þessi systkin bjuggu í húsinu okkar áður en við keyptum það. Elin er með Rakel á leikskóladeild og Johan er einu ári eldri en Arnar Ingi en þeir eru í sama skólastofuhluta. Næsta haust verða þeir saman í skólastofu því að 6-7 ára eru saman og 8-9 ára eru saman í stofu. Þannig að nú býr Rakel í Elinar herbergi og Arnar Ingi í Johans herbergi. Pabbi þeirra kom og sótti þau í dag til okkar en hann hafði ekki sótt þau áður, alltaf mamman. Pabbinn var mjög spenntur og labbaði um allt hús og skoðaði.
Fórum á smáþvæling, ég, mamma og Sigrún í dag og auðvitað náði ég að eyða pening....en nú er ég líka búin að eignast nýjar buxur, skyrtu og peysu, en mamma og Sigrún gáfu mér reyndar peysuna.... takk fyrir mig!
Góður dagur í dag, veðrið alveg frábært, sólarglæta, 12°c og logn. Spáin mjög góð fyrir næstu 2 daga en svo verða einhverjir skúrir um helgina....vona bara að það rætist ekki! Það er komið þvílíkt líf og fjör í mannskapinn og krakkar út um allt að leika sér úti. En það er greinilegt að vorið er komið og vonandi er bara stutt í sumarið hérna.
1 comment:
Fer ekki tönnin örugglega undir kodda:)??
kv.Ásdís
Post a Comment