Monday, 6 October 2008

Ja hérna

Það er aldeilis ástand á Íslandi....þvílíkar aðgerðir í gangi hjá ríkisstjórninni en samt veit maður ekki mikið hvað þetta þýðir.

Frí í skólanum hjá krökkunum í dag og Addi og Elva Björk kíktu í heimsókn með strákana sína. Þeir skemmtu sér bara þrælvel saman og við heimavinnandi foreldrarnir líka.
Fór svo með Rakel á sundnámskeið og hún er bara að standa sig ágætlega....skemmtir sér alla vega vel í sundinu.

Svo er bara að halda áfram að fylgjast með ástandinu í heiminum og vona að maður komi sæmilega undan þessu. Eigum alla vega tvö hús, eitt á Íslandi og eitt í Svíþjóð.

1 comment:

Anonymous said...

Kveðja frá litla Rússlandi.......
Ásdís:)