Wednesday, 22 October 2008

Og lífið heldur áfram.....

.......þrátt fyrir kreppu á Íslandi.

Fór í saumaklúbb í gærkvöldi og það var bara mjög gaman. Silla búin að fá klúbbablaðið frá Gestgjafanum og var með kræsingar úr því blaði, nammi namm.

Er að fara í blóðprufu á eftir vegna skjaldkirtilsins og það leit allt vel út í hálsinum í ómuninni. Er búin að vera á leiðinni í blóðprufu í 2 vikur en nú er að duga eða drepast....ætla að fara áður en við förum til Íslands.

Við förum svo út að borða á laugardaginn með vinahóp og ætlum að fara á Orange. Veit ekkert um staðinn en hann leit vel út á heimasíðunni svo við ætlum að prófa.
Ætli maður fari ekki að huga að því hvað á að taka með fyrir fjölskylduna til Íslands, maður kemst víst ekki hjá því að pakka fyrir hópinn.
En við komum eftir 2 daga, sjáumst!

1 comment:

Anonymous said...

knús á ykkur og til hamingju með afmælið Elsa mín:)
kv.Ásdís