Fórum í dagsferð í dýragarðinn í Ystad. Ágætis dýragarður, ekkert of stór og ýmislegt fyrir börnin eins og leikvellir og sundlaug. Það voru hin ýmsu dýr, t.d sebrahestar, apar, kameldýr, geitur sem hægt var að fara inn fyrir og klappa og fullt af öðrum dýrum. Börnin voru mjög ánægð og ekki skemmdi fyrir að fara svo í sundlaugina eftir á.
Við fórum svo inn í miðbæ Ystad og röltum þar göngugötuna. Fundum strigaskó á Rakel því að strigaskórnir sem hún fékk í vor eru að verða tálausir, skrítið hvað skórnir slitna hratt hjá börnunum!
Keyrðum svo að Ales stenar sem er minnisvarði frá því 600 e.kr. Þetta eru fullt af stórum steinum sem er raðað í hring við sjóinn. Engin veit hvers vegna þetta var gert á sínum tíma en talað er um að þetta gætu verið minnismerki um sjómenn sem hafa farist á skipum eða eitthvað kennileiti til að vísa einhverjum veginn. Það er alveg æðislegt útsýni yfir sjóinn og mjög fallegt að horfa.
Ég fór í saumaklúbb í gærkvöldi og hitti alla íslensku skvísurnar. Það var blaðrað langt frameftir en við erum allar í fríi þannig að það var bara notalegt.
Svo erum við að fara í 5 ára afmælisveislu til Jóhannesar litla Minnasonar.
Saturday, 11 July 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment