Haldið þið ekki að það séu komnir tveir hamstrar á heimilið. krakkarnir eru búnir að vera að sníkja dýr alveg heillengi. Við höfum engan áhuga á að fá kött og það er of binandi að fá hund. Þannig að okkur datt í hug að þau hefðu áhuga á að fá hamstur. Þeir lifa bara í ca. 2 ár og þá þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að sitja of lengi upp með dýr sem krakkarnir eru kannski löngu orðnir leiðir á. Við vorum búin að lofa að þau fengju hamstur eftir sumarfrí en samt áður en skólinn byrjaði.
Svo núna var tíminn. Við fórum í hamstraleiðangur í dag og það voru keyptir 2 hamstrar og 2 hamstrabúr! Hamstrar eru einbúar og slást um sitt pláss þannig að það er ekki hægt að hafa þá í sama búri eftir að þeir verða fullorðnir nema að eiga á hættu að vakna einn morguninn og þá sé annar hamsturinn dauður eftir slagsmál.
Arnar Ingi valdi brúnan hamstur og skírði hann Ari.
Rakel valdi svartan og hvítan hamstur og skírði hann Spratli!! Ekki spyrja mig hvaðan hún hefur það nafn og af hverju hún valdi það. Ég er alltaf að reyna að muna þetta furðu nafn.
Það er reyndar ekki búið að vera nógu spennandi ennþá með hamstrana því að það var ráðlagt að láta þá alveg vera fyrsta daginn meðan þeir væru að jafna sig eftir að flytja á nýjan stað. Svo auðvitað eru þeir búnir að sofa inni í húsi í búrinu sínu í nánast allan dag. Enda eru þetta næturdýr. Það verður fróðlegt að vita hversu hávaðasöm fyrsta nóttin verður.
Friday, 31 July 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment