Wednesday, 29 July 2009

Komin til baka

Þá erum við komin í hlað heima aftur. Fórum snemma í morgun í Astrid Lindgren garðinn og eyddum meirihluta dagsins þar. Held bara að við séum búin að skoða allt og sjá nánast allar leiksýningar sem voru sýndar þarna. Veðrið var alveg frábært,hlýtt og sólskin meirihlutann.

Keyrðum svo heim (tælegar 400km) og stoppuðum á leiðinni í bæ sem heitir Kronoberg og skoðuðum þar kastala rústir sem standa við stórt vatn, rosalega var fallegt þar enda veðrið æðislegt. Keyrðum svo í gegnum sveitavegi hluta af leiðinni í staðinn fyrir að vera bara á hraðbraut. Mjög gaman að skoða náttúruna og hvað allt umhverfi var snyrtilegt þarna. Svo var auðvitað stoppað til að kaupa ís og að borða.

Við erum mjög ánægð með ferðina og krakkarnir alveg himinlifandi. Svo tekur bara alvaran við í næstu viku og þá fer Helgi að vinna í Bretlandi aftur og verður að vinna þar næstu 18 vikur! Ekki gaman en sem betur fer fáum við fjölskyldan að sjá hann um helgar.

Svo er bara að fara í smá bæjarrölt í Lundi á morgun, ætlum að kíkja aðeins á bókasafnið og kannski í dýrabúð og kíkja á hamstra.

No comments: