Saturday, 25 July 2009

Jæja, jæja.....

....Núna er Helgi byrjaður að vinna í Swindon í Englandi, er sendur þangað frá Applicon vinnunni sinni og verður að vinna þarna næstu mánuðina :(
Hann fer eldsnemma á mánudagsmorgnum (eða nótt) og kemur heim á föstudagskvöldum, ekki skemmtilegt. Ég fæ að hafa hann hjá mér um helgar alla vega næstu 4 mánuði.
Hann er búinn að fara svona síðustu 2 vikur en er í fríi í næstu viku og við ætlum að fara í Astrid Lindgrens värld sem er skemmtigarður með öllum karakterum úr sögum Astrid Lindgren.

Katrín vinkona og Hekla María dóttir hennar voru í heimsókn hjá okkur alla síðustu viku og við höfðum það mjög gott og skemmtilegt. Við fórum m.a í Tosselilla skemmtigarðinn sem er tivolí og sundgarður. Og svo eru líka nokkur dýr og Tarsan skógur sem hægt er að sveifla sér og klifra og börnin höfðu mjög gaman af.
Svo fórum við í bæjarrölt, hjólatúra og héldum partý með pizzum, poppi og snakki. Það var sett í gang diskóljósið hennar Rakelar og tónlist í botn og dansað og haft gaman. Svo vorum við búnar að fela poka með nafni krakkana á og þau þurftu að leita að sínum poka. Í pokanum leyndist smá dót og nammi og krakkarnir voru himinlifandi.

Rakel er búin að suða um að fá göt í eyrun í allt sumar. Ég var nú ekki viss hvar það væri gert hérna í Svíþjóð en þegar við fórum í bæjarröltið okkar þá komumst við að því. Og Rakel á pantaðan tíma 3.ágúst til að fá göt í eyrun!

Mataræðið er ekki búið að vera glæsilegt síðustu vikurnar og ég er að borga fyrir það núna í þrengri fötum og þrútnum líkama :( En eftir sumarfrís ferðina okkar í næstu viku þá verður tekið á því og farið í ræktina á fullum krafti. Svo kemst auðvitað allt í rútínu þegar krakkarnir byrja í skólanum þanni 18.ágúst.

No comments: