Þá erum við komin til baka frá rúmlega 5 vikna Íslandsferð. Það er ótrúlegt hvað tíminn leið hratt.
Við fórum í brúðkaup, fullt af matarboðum, afmæli,vinahitting, sumarbústaðaferð í Kjósina til mömmu og pabba, sumarbústaðaferð í Fljótshlíð til tengdapabba, ég og Rakel tókum þátt í kvennahlaupinu og svo fóru börnin m.a á sundnámskeið, íþróttanámskeið og fóltboltanámskeið.
Arnar Ingi átti 9 ára afmæli þann 27.júní og það var haldið uppá það.
Helgi skrapp eina viku til Stokkhólms til að vinna og svo fór hann nokkrum sinnum í Applicon í Borgartúni að vinna.
Við hittum smiði, málara, pípara, múrara, þakdúkara, gluggasölumann, parketsölumann, flísasölumann, granítsölumann, eldhúsvaskssölumann, gólfhitalagnasölumann og ég veit ekki hvað! Ótrúlegt hvað það fór mikill tími í svona stúss. Hefðum alveg viljað vera meiri túristar og gera meira en dagarnir þutu áfram á þessum nótum.
Höfðum það svakalega gott á Íslandi og það er líka svakalega gott að vera komin heim aftur til Lundar.
Búin að setja inn alveg fullt af myndum en ekki í neinni sérstakri röð. Vorum með 2 myndavélar og myndirnar eru bara settar inn úr báðum vélum og mjög óskipulagðar. En það eru alla vega myndir til að skoða frá Íslandsferðinni.
Tuesday, 7 July 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment