Monday, 29 November 2010

Nenni ekki meira bloggi í bili.

Eins og þið sjáið þá er ég ekki búin að vera dugleg að blogga upp á síðkastið, ekkert bloggað núna í mánuð. Ég ætla ekkert að vera að blogga í bili, nenni því ekki. Ég er á facebook og hef sett þar inn nokkrar myndir og af og til skrifað statusa og ég sé svo bara til hvenær ég nenni að halda áfram að blogga á þessari síðu, ætla ekki að hætta en er samt hætt í bili.

Annars bara allt fínt að frétta á þessum bæ. Anna María kom í heimsókn til okkar um miðjan nóvember og stoppaði í nokkra daga. Það var æðislegt að hafa hana í heimsókn og ég finn hvað ég sakna allra "gömlu" vina minna þegar ég bý svona í útlöndum.

Við förum til Íslands 14. desember og verðum yfir jól og áramót á Íslandi í húsinu okkar. Ætlum að bjóða foreldrum mínum í mat á aðfangadag og svo látum við bara ráðast með aðra daga hvernig það fer í matarmálum. Það er of snemmt að vita eitthvað um það núna.

Þannig að allir sem ætla að senda okkur jólakort og gefa okkur jólapakka ;-) , þá má senda það í Láland 8, 108 Reykjavík.

Ég segi bara hafið það sem allra best yfir jólahátíðina. Bless í bili.

Thursday, 28 October 2010

Komin og farin.

Þá er vikan mín á Íslandi búin.  Kom seint á sunnudagskvöldinu 17. október og heim á sunnudeginum 24. október.

Það var brjálað að gera við að hitta vini og ættingja og svo hélt ég matarboð fyrir fjölskylduna. Náði líka að þvo og bóna bílinn þannig að hann er hreinn og bónaður fyrir næstu Íslandsferð, bíður bara eftir okkur í bílskúrnum.  Þessi Íslandsferð var mjög skemmtileg og ég náði að hitta marga en maður var alltaf borðandi!  Matarboð og hádegishittingar, ekki það að það sé ekki gaman, en það fer kannski ekki vel með vöxtinn :-)

Ég átti svo afmæli á mánudaginn og Helgi og krakkarnir vöktu mig með afmælissöng og svo bökuðu þau köku úr hvítu súkkulaði og gulrótarkökukremi....nammi, namm, hvað kakan var góð.  Við ákváðum að frysta afganginn af henni og eiga til góða seinna.  Verður samt örugglega fljótlega þegar maður veit af kökunni í frysti!

Við erum svo með matarklúbb um helgina og það verður rosalega gaman að hitta allt gengið.

Helgi er í Swindon og kemur annað kvöld. Rakel er búin að vera með hita þessa vikuna og ég bara búin að hanga inni alla vikuna en hún fer nú í skólann á morgunn.  Svo er vetrarfrí hjá krökkunum í skólanum alla næstu viku þannig að þau verða heima.  Veit ekki alveg hvað við gerum því Helgi þarf að vinna en hann verður samt að vinna að heiman, ekki í Swindon.

Thursday, 14 October 2010

Bloggleti

Er eitthvað frekar löt að blogga þessar vikurnar.  Enda ekkert merkilegt að gerast svo sem. 

Er reyndar að fara til Íslands á sunnudagskvöldið og hlakka mikið til.  Verð í eina viku og vikan er strax orðin frekar pökkuð í hittingi, matarboðum og skemmtilegheitum. 

Helgi er í Berlín þessa vikuna á SAP ráðstefnu og kemur á morgun. 

Arnar Ingi losnaði við gifsið í gær en er samt frekar aumur í hendinni, kemur í ljós þegar ég sæki hann í skólann hvernig fyrsti skóladagurinn án gifs gekk. Hann fór reyndar í píanókennslu í gær en spilaði ekki mikið með vinstri hendinni, kennarinn lét hann spila meira með hægri og kíkja á nótur, best að byrja rólega á þessu.

Ég var með Rakel í reiðskólanum í gær og var þar teymandi og hlaupandi með hestinn og Rakel, æfing fyrir mig líka :-)


Thursday, 23 September 2010

Rakel í reiðskólanum.


Verið að kemba Cimba.

Rakel og Cimba tilbúin.

Komin á bak.

Úti í göngutúr.

Wednesday, 22 September 2010

Strákurinn búinn að brjóta sig

Arnar var svo óheppinn að detta í skátunum og braut á sér hendina. Þarna er hann nýkominn af slysó, orðinn svangur og þreyttur.

Sunday, 19 September 2010

Úpps.

Vá, hvað tíminn líður hratt, sé að það er rúmur mánuður frá því að ég bloggaði síðast. En svona er þetta.

Rútínan er skollin á. Krakkarnir í skólanum, Helgi í Swindon og svo eru það, píanó, skátar og sund hjá krökkunum. Rakel komst svo inn í reiðskóla, hún var á biðlista þar og er núna byrjuð. Hún átti svo afmæli 12.september og fékk reiðhjálm, reiðbuxur, legghlífar og reiðhanska í afmælisgjöf. Ekkert smá ánægð dama :-) Afmælisgestirnir komu til Rakelar og fengu hádegissnarl og svo var brunað til Malmö í Build a bear búðina og þar tekið á móti okkur og krakkarnir fengu að velja sér bangsa og hafa gaman í klukkutíma með starfsmanni búðarinnar. Eftir það fórum við svo aftur heim og þá var borðuð afmæliskaka og sungið fyrir afmælisbarnið. Allir alveg mjög glaðir með afmælið, bæði gestir og afmælisbarnið.

Mamma og pabbi komu í heimsókn og voru hjá okkur í 10 daga. Það var svo gott að hafa þau og dagarnir flugu alveg áfram. Núna er tæp vika síðan þau fóru og það gætu samt verið nokkrar vikur, mér finnst svo langt síðan þau voru hérna.

Svo er ég á leið til Íslands um miðjan október. Það kom tilboð frá Icel.Express og Helgi ætlar að gefa mér Íslandsferð í afmælisgjöf, svona smá húsmæðraorlof. Það verður gaman að koma og hitta ættingjana og vinina.

Ánægðar með bangsana sína.


Rakel að opna pakka.

Sara og Hanna.

Carolina.

Rakel og Gaia.

Build a bear.




Rakel


Rakel í nýju reiðfötunum.

Að morgni afmælisdagsins.

Glöð með pakkana.

Borða og lesa.

Arnar Ingi


Arnar að baka.


Arnar Ingi komin með gleraugu.

Í hjólatúr með pabba sínum.

Á leið í skólann.

Tuesday, 17 August 2010

Skóli, skóli

Þá er skólinn byrjaður hjá krökkunum. Rakel fór í sama skóla og áður og er nú í næst elsta árgangnum.

Arnar Ingi er byrjaður í nýjum skóla sem er í allt öðru hverfi en við búum í.  Ástæðan fyrir því er að hans árgangur átti að skipta um skóla og sá hverfisskóli er alveg ömurlegur. Þykir leiðinlegt að segja þetta er það eru nánast bara innflytjendur í þeim skóla og hann er bara ekki að virka. Það eru tveir lélegir skólar í Lundi og þetta er annar þeirra. Hinn er því miður líka mikill innflytjendaskóli. Þetta segir nú eitthvað!  En skólinn sem hann fer í er lítill og heimilislegur skóli og það var vel tekið á móti Arnari Inga þar.  Mikið af ljóshærðum krökkum, svo ég segi ekki meira.  Við þurfum reyndar að keyra hann og sækja alla daga en það er bara hluti af því að eiga börn og sjá til þess að þeim líði vel.

Svo fer bráðum að skella á öll rútína.  Sundnámskeiðið hjá krökkunum fer að byrja, skátarnir fara að byrja og píanó hjá Arnari Inga.  Rakel þráir að fara í reiðskóla og ég skráði hana þar í vor en það var allt fullt og hún er á biðlista.

Rútínan í vinnunni hjá Helga er byrjuð, fer til Swindon aðra hvora viku og vinnur að heiman aðra hvora viku.  Það er þó skárra heldur en áður þar sem hann fór í hverri viku til Englands að vinna.


Saturday, 7 August 2010

Sumarfríið búið.

Nú sest ég loksins niður og fer að blogga pínulítið.  Sumarfríið hjá Helga er búið og hann fer til Swindon á mánudaginn.  Skólinn hjá krökkunum byrjar svo 17. ágúst.

Við erum nú búin að gera heilmikið frá síðasta bloggi hjá mér.  Keyrðum til Linköping og gistum þar eina nótt og héldum svo áleiðis til Stokkhólms.  Þar vorum við í 5 nætur í íbúð sem Applicon í Svíþjóð leigir fyrir starfsmenn sína. Það var farið í Gröna Lund tivolí,  við fórum í skerjagarðssiglingu og svo keyptum við miða í Hop on, Hop off báta þar sem við skoðuðum okkur um.  Okkur var boðið í hádegismat hjá Andra vinnufélaga Helga og í kvöldmat hjá Huldu (fyrrverandi vinnufélaga mínum)  og Þóri. Einnig fórum við í sund og röltum um Gamla Stan og ýmislegt fleira.  Þetta var mjög skemmtilegur tími. Við keyrðum svo til Jönköping og gistum þar eina nótt á leiðinni heim. Jönköping er alveg rosalega fallegur bær og við borðuðum kvöldmat við höfninni þar.

Einn daginn tókum við svo bíltúr með Möggu og Birni Inga og keyrðum og skoðuðum Sofiero sem  er kastali og kastalagarður. Svo keyrðum við áfram til Höganäs og Mölle og enduðum svo í Viken og borðuðum þar. 

En núna fer svo rútínan að komast í gang og það er bæði gott og slæmt.  Gott að krakkarnir fái rútínu en slæmt að ég fái rútínu og verði aftur ein meðan Helgi er í Swindon.  En einhvern tímann hlýtur þetta að hætta og þá verður vonandi gaman.

Tuesday, 6 July 2010

Bloggi, blogg

Jæja, komin tími á smá blogg  hérna.

Við fjölskyldan erum komin heim í Lund aftur og það er búið að vera hátt í 30°C hiti, algjörlega ólíft. Ekki gott!  En núna er "bara" 20°C hiti og það er nokkuð gott, svo er smá vindur líka. Við verðum algjörlega óvirk þegar það er svona heitt, nennum ekki neinu. 

Við fórum í fermingu hjá Þorra, þeirra Adda og Helgu á laugardaginn. Hann fermdist hérna í Lundi og fermingin hérna er með öðru sniði en á Íslandi. Mikið fjör, hálfgert leikrit og allir fermingarkrakkar í kufli og berfættir. Alveg frábært!  Veislan hjá Adda og Helgu var mjög skemmtileg. Það var grillað íslensk lambakjöt og gott meðlæti og setið úti og borðað. Flott veisla og skemmtileg.

En þá aftur að New York ferðinni okkar. Við fórum í siglingu að frelsisstyttunni og það var mjög gaman að sjá þessa frægu styttu svona nálægt og svo öll háhýsin í NY úr bátnum. Svo gengum við að "ground zero" þar sem tvíburaturnarnir voru og skoðuðum eitthvað minningasafn um það og árásirnar.  Við vorum svo heilmikið í túristastrætó og keyrðum þar um Harlem, Brooklyn og um öll helstu stræti NY.  Við fórum í Magnolia bakery og keyptum þar cupcakes og ostaköku og fórum í Central Park og borðuðum og kíktum á mannlífið.  Mjög skemmtilegt.  Á miðvikudeginum fórum við svo með lest til Auðar og Péturs á Long Island. Við Auður fórum aðeins í Kohl's og Target en ég fann ekki það sem ég var að leita að.  Svo var Sæunn, dóttir Auðar og Péturs að fara á "Prom night" í skólanum og það var verið í hárgreiðslu, förðun og allt það sem fylgir að fara á svona galakvöld.  Það var rosaflottur síðkjóll og bara eins og þegar fegurðardrottningarnar taka þátt í fegurðarsamkeppni.  Sæunn var mjög flott og sæt.  Svo fórum við með Auði þar sem var verið að taka myndir af öllum pörunum heima hjá einni vinkonunni. En hún bjó í hálfgerðri höll (svona Dallas tilfinning) sem var byggð af mafíósa í gamla daga.  Risastórt hús á risastórri landareign. Svo var annað stórt einbýlishús sem sér sundlaug þar sem þjónustufólkið bjó í gamla daga en "amman" bjó í núna.  Einnig var verið að byggja annað stórt einbýlishús á landareigninni.  Og þessi hús öll eru ekkert nálægt hvort öðru.  Ótrúlega gaman að sjá þetta allt saman.  Á leiðinni til baka þá fórum við í matvörubúð og það var keypt inn fyrir kvöldið.  Svo var grillaðar frábærar nautalaundir, grænmeti og sósa....nammi, namm!  Við sátum úti í garði og borðuðum og höfðum það gott.  Nema að Helgi fékk nokkur moskító bit á kálfana.

Við komum svo til Íslands aftur aðfaranótt föstudagsins. Krakkarnir voru svo spennt að sjá dótið sem við höfðum keypt að þau voru mætt um hádegið til okkar. Og það var mjög gaman að hitta þau aftur og ég held bara að mamma og pabbi hafi líka verið ánægð að þau kæmu til okkar aftur :-)  

Við höfðum nóg að gera þessa viku sem við vorum á Íslandi. Arnar Ingi átti afmæli og við héldum uppá það. Svo vorum við að setja saman hillur í geymsluna og taka til í bílskúrnum svo að bíllinn okkar kæmist þar inn....og þetta tókst!  Ég þreif svo alla glugga að utan, reyna að ná síðustu leyfunum af öskunni burt þó svo að mamma og pabbi hafi reynt að sprauta af öllum gluggum. Svo var bíllinn þrifinn og bónaður, grasið slegið og rakað, arfi tíndur og nýju tréræflarnir okkar vökvaðir.  Við kíktum uppí Kjós í sumarbústaðinn til mömmu og pabba. Kíktum í Bjarmó til tengdó, fórum í mat til Inga og Þóru, ég hitti Guðrúnu og Írisi á Friday's og fór með Ingu og Bryndísi í heimsókn til Þórdísar.  Það var sem sagt nóg að gera og við náðum ekki að hitta alla sem við hefðum viljað. En það kemur bara að því seinna....við erum með á planinu okkar að flytja til Íslands næsta sumar þannig að þá verður nægur tími að hitta alla.  

Næst á dagskrá hjá okkur er að fara til Stokkhólms í næstu viku og við erum með íbúð þar frá 16-21.júlí.  Við ætlum nú að gista einhvers staðar á leiðinni og skoða okkur aðeins um. En erum ekki alveg búin að plana hvert við förum eða hvar við gistum. 

Tuesday, 22 June 2010

Labba og labba

Við erum sko búin að labba mikið hérna í New York.  Held bara að við séum búin að skoða það sem við vorum með á dagskrá þ.e Empire State, Frelsisstyttuna, Wall Street, Ground Zero þar sem World Trade Center var fyrir 11.september 2001. Búin að fara í Central Park og Time Square, kíkja í nokkrar búðir en ekki búin að kaupa neitt mikið, jú, keypti þrjár afmælisgjafir....leyndó hvað það er!!

Morgundagurinn verður bara nokkuð rólegur, förum líklega í Central Park og sitjum þar eitthvað og horfum á mannlífið.  Förum út að borða annað kvöld á veitingastað sem heitir Balthazar.

Á miðvikudaginn ætlum við að kíkja til Auðar Héðins og hún ætlar að taka okkur smá rúnt í búð sem ég "þarf" að komast í sem er ekki á Manhattan. Við gistum hjá henni (þessi elska bauð okkur að gista og fara með okkur (eða mér) þennan búðarrúnt).  Svo er bara heimför á fimmtudaginn, tíminn er ótrúlega fljótur að líða. Þessi New York ferð er búin að vera alveg frábær og veðrið mjög heitt, um eða yfir 30°C hiti alla daga.

Krakkarnir eru í góðum höndum hjá mömmu og pabba og búin að vera nokkra daga í Kjósinni í sumarbústað.  Auðvitað eru þau að rífast og slást þar eins og heima hjá sér en ég veit að þau eru búin að skemmta sér mjög vel og held að þau sakni okkar ekkert. Takk fyrir þetta, mamma og pabbi!!

Saturday, 19 June 2010

New York

Þá erum við búin að vera í rúmlega tvo sólarhringa í NY. Búin að labba alveg rosalega mikið.  Fórum að kíkja á Time Square í gær og röltum um Central Park.  Fórum inn í Toys R Us og FAO Schwarz að leita að dóti sem var á óskalistanum fyrir börnin. Fundum það og keyptum afmælisgjöf fyrir Arnar Inga. Erum búin að kíkja í nokkar búðir en bara að rölta í gegn, höfum ekki keypt mikið enda ekki hægt að skoða mikið þegar Helgi er með í för, hann fær bara hjartsláttartruflanir og öndunarerfiðleika í búðum!!!  Það sannaði sig líka áðan þegar ég fór í Victorias Secret og var að máta og skoða að hann var að því kominn að deyja!  En það verður ekki farið meira í búðir held ég, erum svo sem ekki í verslunarferð heldur í skoðunarferð og í fríi.

Við fórum í Empire State building áðan og skoðuðum útsýnið yfir NY.  Þvílíkt flott, rosalega gaman að sjá þetta.  Svo finnst mér við alltaf vera borðandi.  Fórum á stað sem heitir China grill í gærkvöldi, flottur og dýr staður og maturinn var alveg æðislegur. Risastórir skammtar og þjónninn mælti með því að við fengjum okkur sitthvorn forréttinn og svo einn aðalrétt saman. Við gerðum það og vorum alveg að springa, kláruðum ekki einu sinni allan matinn!  Við löbbuðum svo frá veitingastaðnum á hótelið, það er þó nokkur spotti og gengum þá í gegnum Time Square og þar var allt fullt af fólki og ljósaskilti út um allt, mjög gaman að sjá þetta.

En ég get alveg sagt það að maður verður dauðþreyttur að vera á götum New York. Það er svo mikill umferðahávaði og mikið af fólki og við erum nú ekki von því.   En það er skemmtilegt að upplifa þetta allt saman.

Ætlum ekki að fara út að borða í kvöld, borðuðum vel í hádeginu og ætlum bara að fá okkur Subway eða eitthvað álíka í kvöld.  Svo eigum við pantað borð á veitingastað á morgun sem heitir Spice Market og er víst mjög góður og vinsæll í NY.  

Friday, 18 June 2010

Morgunverður

Náðum að halda okkur vakandi til rúmlega níu í gærkvöldi. Vöknuðum svo frekar snemma en fórum ekki framúr fyrr en 6:45 í morgun.

Við erum núna á kaffihúsi rétt hjá hótelinu þar sem við náðum í frítt internet.  Fengum okkur morgunverð þar....lífrænt jógúrt með berjum og músli, bláberjaskonsu og appelsínusafa.  Smá sýndarmennska og þykjast vera holl en óhollustan bíður okkar.  Ætlum að fara í dag að skoða Rockafeller center og labba á Time Square og í Central Park.  Þar er líka risastór Toys R' Us búð þar sem við ætlum að kíkja í.  Rakel er búin að biðja um að fá monsu og Arnar vill Predator leikfang. Við eigum svo pantað borð á veitingastað sem heitir China grill og förum þangað í kvöld.

Svo kemur bara í ljós hvort planið okkar gengur eftir.

Komin!

Þá erum við hjónin komin til New York.  Ferðin gekk mjög vel, örfáir í flugvélinni og við vorum með sætaröð fyrir okkur, enginn fyrir aftan, hliðina né fyrir framan. Við horfðum á tvær bíómyndir á leiðinni og höfðum það bara nokkuð gott miðað við langt flug.  Byrjuðum á að fara á Starbuck's á flugvellinum og ég fékk mér Frappucino með karamellusósu og Helgi fékk sér Cappucino.

 

Hótelið okkar er mjög vel staðsett, á 30th Street, nálægt Empire State Building, Macy' s versluninni og bara fullt af verslunum og veitingastöðum.  Við fórum í smá könnunarleiðangur í kringum hótelið og enduðum svo á að borða á litlum mexikönskum stað. Góður matur en ósköp þreyttur staður. En við vorum orðin svo þreytt sjálf eftir flug og rölt og við fórum og röltum um Macy's.  Vá hvað maður verður þreyttur á öllum mannfjöldanum.  Það er alveg ótrúlega margir á röltinu og hávaðinn á götunum, fullt af fólki, þvílík umferð, flaut og læti.  Gaman að sjá hvað þetta er nú líkt og maður sér í bíómyndunum, troðfullar götur.  Maður þarf nú aðeins að átta sig á stærðinni á byggingunum.  Við erum ekki alveg ákveðin í hvað við gerum á morgun en kíkjum hugsanlega í Empire State eða Rockafeller center og svo verðum við nú að kíkja aðeins í Central Park.

 

Við erum núna komin á hótelið og klukkan er bara átta að kvöldi hérna en komið miðnætti á Íslandi og klukkan orðin tvö í Svíþjóð. Við vorum nú ekki alveg komin inná íslenska tímann eftir tvo daga á Íslandi  og erum  alveg dauðþreytt. En við þurfum að halda okkur vakandi lengur til að reyna að stilla okkur inná tímann hérna í New York.

Monday, 14 June 2010

Erum á leiðinni

 Nú erum á leiðinni til Íslands á eftir.  Við Helgi skiljum svo börnin eftir hjá mömmu og pabba og stingum af til New York á fimmtudaginn.  Spennandi, ég hlakka til. Við verðum í viku og svo í viku á Íslandi.  Förum aftur til Svíþjóðar þann 2.júlí.


Thursday, 3 June 2010


Við Helgi hjóluðum í bæinn og borðuðum saman hádegismat í blíðskaparveðri.

Wednesday, 2 June 2010

Lokadagurinn í skátunum.











Monday, 31 May 2010

Eurovision

Ég og Arnar Ingi fórum í heimsókn til Möggu að horfa á Eurovision. Helgi var í vinnuferð lengst í burtu og Björn Ingi í vinnuferð ennþá lengra í burtu þ.e í Ástralíu!
Rakel var í gistingu hjá Carolinu vinkonu sinni og skemmti sér mjög vel.
Arnar Ingi horfði nú ekkert á Eurovision, bara kíkti á íslenska lagið og setti út á að Hera væri þétt í holdum. En það var gaman að hitti einhvern fullorðinn og spjalla við Möggu. Og ég var ekkert hissa á niðurstöðunum á íslenska laginu...fannst það ekki skemmtilegt en við kusum það nú samt!

Saturday, 29 May 2010

Kalas

Fórum á afmælishátíð í hverfinu hjá okkur. Ýmsar uppákomur og krakkarnir prófuðu að hamra járn og móta. Rakel fór að prófa kassaklifur. Svo var kanínuhopp, flóamarkaður, skátaþraut og ýmislegt annað.












Wednesday, 26 May 2010

Klippingar

Fór í dag með krakkana í klippingu. Helgi fór í gær í klippingu og ég fer eftir tvær vikur í klippingu þannig að öll fjölskyldan verður nýklippt bráðum.

Helgi fór til Swindon í morgun og verður fram á föstudag. Þá flýgur hann beint til Stokkhólms og fer með vinnunni í einhverja ráðstefnu og fundarferð (lesist: smá vinna og svo djamm). Hann kemur svo aftur til okkar á þriðjudaginn í næstu viku.

Nökkvi og Ásdís komu í heimsókn í Lund og gistu eina nótt hjá Minna og Agnesi. Þau komu síðan öll til okkar í hádegismat og það var mjög gaman. Svo fóru Nökkvi og Ásdís til Kaupmannahafnar því Ásdís var að fara í maraþon á sunnudaginn þar sem hún stóð sig með prýði.

Ég nennti ekki að horfa á eurovision í gærkvöldi. Hafði reyndar enga trú á því að Ísland kæmist áfram og varð frekar hissa þegar það gerðist. Ætli maður horfi ekki á keppnina á laugardag.

Sunday, 23 May 2010

Loksins...

...loksins, nokkrir heitir og góðir sumardagar. Erum búin að fá 4-5 góða daga. Hiti og sól inn á milli. En þetta ætlar ekki að endast, spáð rigningu í vikunni og milli 12-15°c. Ekki gaman!!

Um helgina var Lundakarnevalen sem er á fjögurra ára fresti. Fullt um að vera í bænum, alls konar uppákomur, tivolí og skemmtiatriði. Við fjölskyldan löbbuðum í bæinn því við nenntum engan veginn að reyna að fara á bíl, fullt af götum lokaðar og alveg hellingur af fólki. Það eru ca. 4 kílómetrar í bæinn og krakkarnir voru svo duglegir. Síðan gengum við um allan bæinn, stóðum lengi að bíða eftir "Lundatåget" sem var svona lest af bæði fólki og bílum með ýmsum uppákomum (svipar kannski pínu til gleðigöngunnar i Rvk.) Svo tókum við sömu leið til baka og löbbuðum heim en með nokkrum stoppum. Það var svo gott veður að við settum í grasið og höfðum það gott, hvíldum okkur og spjölluðum, keyptum einnig ís.

Síðan gerðist annað....við erum búin að selja hamstrana sem krakkarnir áttu! Þau voru algjörlega búin að missa áhugann á hömstrunum og bara vinna fyrir mig að þrífa búrin. Og svo auðvitað vesen að finna "pössun" fyrir þá þegar við förum á ferðast og í frí. En hamstrarnir fóru á góðan stað. Bernhard og Carolina vinir krakkana keyptu þá þannig að þau geta alltaf fylgst með þeim og við ætlum að passa þá þegar þau ferðast eitthvað. Það verður bara gaman. Og svo vitum við að það verður farið vel með dýrin þarna...þetta er mjög fín fjölskylda.

Saturday, 15 May 2010

Hvar er sumarið?

Ég bara spyr "Hvar er sumarið?" Það er ótrúlegt hvernig vorið og sumarið er búið að vera hérna. Vorið hefur alltaf verið besti tími ársins hérna í Lundi, maí alveg dásamlegur og sólríkur. En nei...nú er bara skítaveður og spáin ekkert sérstök. Við erum öll farin að bíða eftir að fá almennilegt veður.

Mamma er komin og farin. Það var æðislega gaman að fá hana í heimsókn og ég fékk að hafa hana tveimur dögum lengur en áætlað var vegna eldgossins á Eyjafjallajökli. Það var aska sem truflaði samgöngur á Keflavíkurflugvelli og mamma þurfti að stoppa tveimur dögum lengur en hún ætlaði. En það var bara gaman og auðvitað náði hún að eyða smá pening á þeim tíma ;-) Og auðvitað var mamma notuð í barnapössun. Við Helgi áttum brúðkaupsafmæli þann 1.maí og mamma passaði meðan við fórum út að borða. Og svo var matarklúbbur viku seinna og þá passaði hún líka, það er munur að hafa mömmu hjá sér!
Við vorum heilmikið á búðarflakki og í göngutúrum og höfðum það svo rólegt inn á milli. Vorum reyndar svekktar út í veðrið, við vildum vera úti í garði í sólbaði og njóta veðursins sem er alltaf svo gott í maí.

Við fjölskyldan fórum í kaffiboð til Minna og fjölskyldu á fimmtudaginn þar sem það var uppstigninardagur og frí í skóla og vinnu.
Á föstudaginn fórum við svo yfir til Kaupmannahafnar í Experimentarium safnið með krakkana og vorum þar í nokkra klukkutíma að skoða, gera tilraunir og horfa á alls konar tilraunir og þess háttar. Kíktum svo í stutta stund til Klemma og Röggu. Þau voru að fara á fótboltaleik þar sem Halldór sonur þeirra var að keppa. En það var gaman að geta aðeins kíkt á þau þó svo að þetta hafi bara verið rúmur klukkutími.

Ekkert sérstakt planað í dag, búið að vera grenjandi rigning í morgun. Ætlum samt í Bejer að kaupa sand á milli hellnanna í garðinum hjá okkur og kaupa græju til að tína upp fífla í garðinum. Býst nú samt ekki við að við förum að vinna í garðinum í dag í rigningunni, það bíður betri tíma.

Saturday, 1 May 2010

Sápukúlur

Thursday, 29 April 2010

Blessaða eldgosið

Jæja, ég komst heim til Lundar tveimur dögum eftir áætlaðan dag.  Ég flaug til Gautaborgar og tók svo lest þaðan til Lundar.  Það gekk allt mjög vel og ég fegin að hafa komist frá Íslandi. Var farin að sakna litlu fjölskyldunnar minnar frekar mikið því óvissan er verst.  Að vita ekkert hvenær ég kæmist til baka var það versta.  Ef ég hefði bara vitað að ég þyrfti að stoppa tveimur til þremur dögum lengur hefði það ekki skipt máli en maður vissi ekkert og var alltaf í startholunum ef það yrði flogið.

Ég hafði það mjög gott á Íslandi.  Fór í fermingu til Evu Óskar, dóttur Dóru, fór í bíó, í matarklúbb, í nokkur matarboð og heimsóknir.  Keypti gardínustangir í IKEA og pabbi setti þær upp í svefnherberginu svo ég gæti haft dimmt þar inni.  Svo voru pantaðar screen gardínur frá Z-brautum til að hafa í stofunni.  Þær komu svo upp rétt eftir að ég var farin og auðvitað var það pabbi sem reddaði málunum.  Svo hitti ég garðyrkjumann sem setti núna í vikunni niður litlar hríslur fyrir okkur fyrir framan húsið, hinar voru allar dauðar og morknar, ógeðslega subbulegt að hafa það svona.  Og auðvitað var það pabbi sem reddaði vatni fyrir garðyrkjumanninn og er svo búinn að fara að vökva eftir það.....hvað myndi ég gera ef ég ætti ekki svona frábærann pabba!!

Núna er mamma á leiðinni til mín, hún er  í þessum skrifuðu orðum að bíða eftir að Helgi lendi frá Bretlandi og þau ætla svo að verða samferða í lestinni heim.  En hvað það verður gaman hjá mér að fá þau bæði hingað.

Arnar Ingi er búinn að vera veikur í heila viku. Var fyrst með höfuðverk, kvef og hita.  Svo varð hann betri en fékk svo aftur hita á þriðjudaginn og er stútfullur af ógeðslegu hori.  Rakel var líka veik en er búin að fara í skólann síðustu tvo daga.  Þannig að ég er búin að vera bundinn inni í heila viku.  Arnar Ingi verður svo heima líka á morgun og vonandi nær hann að jafna sig um helgina.

En núna bíð ég spennt eftir Helga og mömmu. 



Friday, 16 April 2010

Fyrsti dagur í tíkarpössun



Við erum að passa chihuahua tíkina þeirra Möggu og Björns Inga svo krakkarnir fá aðeins að kynnast því að sjá um hund. Það er vonandi að þau fái þetta út úr kerfinu í stað þess að ánetjast :)
Elsa er föst á Íslandi út af eldgosinu, ætlar að reyna að komast til Köben á morgun.. við sjáum hvernig það gengur.
Annars var ég að elda kjötbollur og spaghettí í kvöldmatinn, alltaf gaman að sjá litlu dúlluna mína þegar hún slarfar þessu í sig. Sú er ekki feimin við að sóða sig út.

Wednesday, 7 April 2010

Loksins!

Jæja, það kom að því að ég skrifi smá línu á bloggið.  Er bara búin að gleyma þessu alveg.

En við vorum með gesti nýlega. Hulda og börnin þrjú komu til okkar og voru í 9 daga. Það var voða gaman.  Við fórum auðvitað í nokkrar verslunarleiðangra og Ólöf Björk unglingurinn hafi gaman af því að versla og verslaði heilmikið.  Auðvitað var líka verslað á hina fjölskyldumeðlimina og fjölskyldan fór heim til Íslands með alveg troðfullar töskur.  Svo var farið í göngutúra, í Stadsparken og hjólað.  Rakel fékk nýtt hjól og krakkarnir hjóluðu heilmikið, fórum í Sankt Hans backa að leika og skoða kanínurnar.  Svo var keypt snú snú band og hoppað alveg fullt.  Krakkarnir voru með harðsperrur í fótunum eftir það.

Við fengum íslensk páskaegg og þau voru borðuð á ógnarhraða...nammi, namm hvað þau voru góð.

Magga og Björn Ingi komu í heimsókn annan í páskum með Týru litlu sem er chicuacua hvolpur. Helgi og krakkarnir ætla að passa hana í nokkra daga í næstu viku þegar Magga og fjölskylda eru á Íslandi.  Ég ætla sem sagt ekki að passa hana því að ég verð líka á Íslandi.  Ég átti frímiða með IcelandExpress sem er að fara að renna út þannig að ég ákvað að skella mér til Íslands í fermingu og fer bara ein.  Ætla að reyna að njóta þess að vera í smá húsmæðraorlofi. 

Veðrið er bara allt að koma til hérna, sólin skín og 11°c hiti.  Það kom nú einn sumardagur í síðustu viku þar sem var sól og 17°c hiti. Svo notalegt, nú bíður maður bara eftir fleiri svona dögum.


Thursday, 11 March 2010

Fullt af nýjum myndum frá febrúar mánuði.

Matarboð á Íslandi, Helgi 40 ára.