Jæja, nú er frúin aðeins byrjuð að blogga vegna þess hvað Ásdís er búin að vera ágeng! En ég lofa ekki að ég verði dugleg að blogga, kemur líklega í törnum hjá mér ef ég þekki sjálfa mig rétt!
Þegar pizzubaksturinn hófst á þessu heimili í gær þá tók sú stutta upp á því að gubba! Hún hafði verið að kvarta yfir magaverk fyrr um daginn og það var nammidagur í gær þannig að við vorum viss um að nú hefði hún borðað yfir sig af nammi. Og enn vitum við ekki hvort sú var ástæðan eða hvort hún hafi verið með einhverja gubbupest. Alla vega er hún hress og kát núna og vill bara fá að klára nammið sitt frá í gær.
En partýið gekk vel og nú eru svíar komnir með með framlag í eurovision keppnina í ár. Það var hún Charlotte sem sigraði. Þið munið nú kannski eftir henni því hún vann hana Selmu okkar hér um árið (1998?). Vá! eru virkilega 10 ár síðan! En það var svaka fjör og gaman í gær.
Stefnan tekin á rólegan dag og kannski smá hjólatúr með börnunum. Þurfum reyndar að skreppa í garðyrkjubúð og kaupa nokkur tré í garðinn okkar, það eru líklega 5-6 tré dauð í hekkinu okkar og best að fylla í eyðurnar. Kannski gerum við það í dag, hver veit!
Veðrið er fallegt, reyndar svaka þoka þegar við vöknuðum (Rakel var vöknuð 6:30) en nú er að birta til og sólin að kíkja fram.
Hafið það gott í dag, það ætlum við að gera.
Sunday, 16 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Rosalega líst mér vel á þig Elsa:) það borgar sig greinilega að vera með smá þrýsting!!! híhíhíhí. Gott að pizzuveislan gekk vel.......fyrir utan gubb uppákomuna;)
Hafið það gott í dag........hljómar ekkert smá vel að fara út að hjóla:)
kv.Ásdís
Post a Comment