Annan hvern laugardag förum við með börnin í kirkjuskólann í Lundi. Þetta er á vegum íslensku kirkjunnar í Svíþjóð og stundum kemur prestur í heimsókn. Það er alltaf sungið smá, hlustað á sögu (með boðskap) og svo er smá brúðuleikhús. Auðvitað er þetta allt með kirkjulegu ívafi. Að lokum fá börnin límmiða í kirkjubókina sína og smá drykk og sætt.
Svo ætlum við að halda pizzupartý í kvöld fyrir íslendingahópinn hérna. Við verðum fjórar fjölskyldur ásamt öllum barnaskaranum (reyndar tvær fjölskyldur í hópnum farnar til Íslands).
Í kvöld er líka úrslitakvöld í sænska eurovision þ.e hvað lag svíarnir ætla senda út í eurovision. Þetta er víst rosastórt kvöld hjá svíum og allir horfa spenntir á. Og það ætlum við líka að gera, höfum aðeins fylgst með undan undan úrslitunum og þeir eru bara flottir á því svíarnir!
En ætla að fara að skella mér í pizzubaksturs undirbúning. Hafið gott laugardagskvöld!
Saturday, 15 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
víhí ég er að hoppa hæð mína!!!!! verðið bara að ýminda ykkur það thíhihíhí en ég er svo glöð með að frúin sé að blogga:) jibbí!!!
Gangi þér vel með pizzupartýið!!
kv.Ásdís
Post a Comment