Föstudagurinn langi byrjaði vel, sváfum öll aðeins frameftir og höfðum það notalegt. Eftir morgunmat fóru börnin að horfa á teiknimyndir og ég skreið bara aftur upp í rúm og fór að lesa. Hvenær gerðist það eiginlega síðast? En hvað þetta var notalegt! Fór ekki fram úr fyrr en kl. 11.
Þetta er nú eitthvað sem maður ætti að reyna að gera einn sunnudag í mánuði eða svo. Algjör leti og rólegheit.
Er reyndar búin að þvo þrjár vélar af þvotti, ganga frá þvotti, krydda lambalærið sem verður á páskadag, strjúka yfir gólfin, fara í sturtu og lesa smá meira. Og auðvitað borða nammi inn á milli. Það er eitthvað sem fjölskyldan er búin að vera dugleg í síðustu daga...eða kannski vikur!
Reynum að taka á því eftir páska.
Er enn að velta því fyrir mér hvað ég á að hafa í kvöldmatinn þ.e ég er með kjúklingabringur en veit ekki alveg hvort ég eigi að gera einhvern kjúklingarétt eða grilla bara bringurnar, nota þær í mexíkanskan rétt, gera kjúklingapasta eða hvað? En hef nú enn einhvern tíma í að ákveða það.
Ekkert sérstakt planað í dag, förum kannski í smá göngu- eða hjólatúr ef það styttir upp, nenni ekki í rigningu, alla vega ekki núna.
Og smá orðsending frá Helga...þið eruð nú meira skítapakkið , kíkið á síðuna okkar en kvittið ekki fyrir þó svo að við höfum beðið ykkur fallega um það! Vonandi bætið þið ykkur, bara að kvitta einu sinni. :) Páskakveðja Elsa. ;)
P.S Takk fyrir Ásdís, Hafdís og Linda að kvitta....þið eruð æðislegar!!
Friday, 21 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Já góðan dag og gleðilega páska, (næstu daga).
Það er nú alveg lúxux ef maður hugsar út í það að aðal vandamál dagsins er hverskonar kjúklingarétt á maður að gera. Hér hjá okkur eru svo til þau sömu "stór" vandamál. Hvort eigi að hafa salat með lærinu eða bara þetta venjulega, ORA baunir ofl..
Þetta er þá greinilega ágætt líf sem við eigum okkur í dag ekki satt.
Veðrið hér á Íslandi er nokkuð gott. Nokkurra stiga hiti og sól. Skíðasvæðin eru opin og verður sjálfsagt fullt þar alla helgina.
Maggi er að gera bílskúrinn klárann og Sara og Jón Andrés (tengdasonurinn) eru með honum í því. Það er verið að gera herbergi fyrir þau þar þannig að þau fá smá prívat. Vinkona mín kemur í mat núna og ætlum við svo saman á Stóra AA fundinn í Laugardalshöll í kvöld þar sem koma saman 5000 manns og fagna 52 ára afmæli AA á Íslandi. Æðisleg stund.
Dagný verður 15 ára á morgun og er hún með mörg járn í eldinum hvað á að gera og talar hún svo hratt að ég tel hana og hennar vinkonur vera komnar með nýtt "msn" tungumál. Þetta er e.h. sem er mjög erfitt að skilja, gamla fólkið í fjölskyldunni er allavegana sammála því.
Jæja þarf að huga að matnum og eigið þið sem allra bestu Páska kæru vinir.
Biðjum að heils ykkur,
Kveðja,
Þórdís
Ég tek orðsendinguna hans Helga ekki til mín:)
kv.Ásdís
Post a Comment