Wednesday, 26 March 2008

Veðrið

Það er alveg ótrúlegt með þetta veður. Vaknaði í morgun og allt hvítt! Og nú er þetta mesti snjór sem hefur komið. Hann er nánast farinn núna, sólin búin að skína í dag og kominn 5°c hiti. En það hefur ekki komið neinn vetur hjá okkur, búið að vera eins veður í allan vetur skýjað og um 5°c hiti. Og svo koma páskarnir og þá kemur veturinn. Búið að vera kalt um páskana og þó nokkuð næturfrost. Reyndar er veðurspáin fín, á að fara upp í 10°c hita um helgina....við sjáum bara hvað gerist. Svíarnir eru svona eins og íslendingarnir....tala um veðrið!

Það bættust við nokkrir í skólann í dag. Ein stelpa frá Þýskalandi, ein frá Kýpur og svo auðvitað einn frá Grikklandi í viðbót! Það eru þá komnir 9 grikkir í bekkinn núna. Við erum held ég 15 nemendur núna.

Krakkarnir eru alltaf jafn ánægð í skólanum. Sótti þau í gær og þá var bara sagt "nei, má ég vera lengur?" En síðan kom Rakel með mér heim og Arnar Ingi var klukkutíma í viðbót og kom svo heim. Skólinn er svo nálægt okkur, bara 500m frá heimilinu og engin gata að fara yfir, bara göngustígur alla leið.

2 comments:

Anonymous said...

Svona var þetta líka hérna. En nú er allt að verða autt aftur. En sjálfsagt aðeins kaldara en hjá þér. Og ég sem var að vonast til að veturinn færi að enda :o) Þú gætir næstum bara verið á Íslandi.
Kv. Hafdís
Ferðu nokkuð að blogga á sænsku ... ? Bíð sko eftir slettunum :o)

Anonymous said...

Gaman að börnin skemmti sér svona vel í skólanum!!! Em hvernig er hjá þér?? með grikkjunum:)
kv.ásdís