Nú er allt að smella saman með Ameríkuferðina okkar. Við ákváðum fyrir löngu að fara til Minneapolis að heimsækja fólk þar sem við þekkjum og pöntuðum okkur flugfar. Við förum 15.maí og verðum til 27.maí. Í gær settumst við svo niður og pöntuðum okkur hótel. Við ætlum að vera í 4 nætur hjá vinafólkinu og svo ferðast aðeins norður til Duluth (held það sé nafnið) og vera þar í 3 nætur. Duluth liggur við vatn og ýmislegt hægt að gera með börnunum.
Síðan verður stefnan tekin á Minneapolis í 5 nætur og hótelið sem við pöntuðum er beint á móti Mall of America. Við ákváðum að vera þar því að það er hægt að gera allt þar og gott að vera í göngufæri ef við nennum ekki að keyra neitt annað.
Það er hægt að fara í tívolí, bíó, minigolf og ég veit ekki hvað meira eiginlega. Svo eru auðvitað alveg allt morandi í veitingastöðum þarna og við ættum nú líklega að finna eitthvað við allra hæfi.
Og svo er ekki verra að geta kíkt pínu í búðir....við ætlum nú að kíkja á leikföng fyrir krakkana, svo ódýrt í Ameríku!
Það eina sem við erum ekki búin að panta er bílaleigubíll en það ætti nú ekki að vera mikið mál að fá, alltaf hægt að fá bílaleigubíl. Bara rétt rúmur mánuður í ferðina....hlakka til!
Wednesday, 9 April 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Vá hvað þetta hljómar spennandi! Gaman að versla ódýrt og pottþétt hægt að finna eitthvað sem höfðar til allra.
kv.Ásdís
oh .... hvað þetta er frábært. Maður verður bara græn af öfund :o) En veit að þið eigið eftir að njóta ykkar í tætlur. Svo manstu bara taka helling af myndum.
Kv. Hafdís sem langar svoldið mikið orðið til Ameríku
Post a Comment