Þá eru mamma og Sigrún á heimleið. Það er þvílíkt hvað vikan líður hratt. Það er búið að vera mjög skemmtilegur tími hjá okkur þessi vika og alltaf gaman að fá gesti. Mamma ætlar ekki að vera lengi í burtu frá okkur því að hún kemur aftur eftir 3 vikur ásamt Huldu, Ólöfu Björk, Írisi Ösp og Finn Gauta....það verður gaman að fá þau og við fáum að hafa þau hjá okkur í 10 daga. Reyndar ætlum við líka að nýta okkur aðstæðurnar og fara í brúðkaupsafmælisferð til Stokkhólms 1-3 maí og þá skiljum við börnin eftir hjá gestunum! Góð!
Helgi kom úr vinnuferð sinni frá Stokkhólmi í gær og fékk að æfa sig ágætlega í sænsku í ferðinni. Ánægður með það!
Arnar Ingi á leið í afmæli í dag, ég fer í saumaklúbb á morgun en annars ekkert sérstakt planað þessa helgina, látum það bara ráðast! Góða helgi gott fólk!
2 comments:
Það er naumast að það er mikið að gera. Og komin í saumaklúbb .... er þetta alvöru eða bara svona til að hittast :o) Sakna þess að við séum hættar að hittast þó það liði langt á milli. Hafi þið það gott.
Kv. Hafdís
Nei, Hafdís þetta er ekki alvöru saumaklúbbur, bara þessi týpiski kjaftaklúbbur og át. Ég er sammála, ég sakna þess að hitta ekki alla "saumaklúbbana" sem maður var í á Íslandi. En við höfum nú hist þegar ég kom til Íslands, tvisvar! Njótið lífsins!
Post a Comment