Ekki mikið að gerast þessa dagana, lífið gengur sinn vanagang.
Fórum í morgunkaffi í leikskólanum hjá Rakel og hún voða ánægð með það.
Helgi er duglegur að fara í golf með Birni Inga og er líka búið að vera veðrið til þess.
Við erum reyndar ennþá með vetrardekkin undir bílnum og alltaf á leiðinni að skipta. Reyndar er dekkjaþjónustan sem við notum með sumardekkin okkar á "dekkjahótelinu" hjá sér. Rosalega þægilegt, komum bara á bílnum, bíðum eftir að það sé skipt um dekk og þeir geyma svo dekkin þangað til við komum aftur. Reddum þessu með dekkin í dag!
Ætlum í bíó í kvöld, fundum barnapíu sem við ætlum að prófa að láta passa í kvöld, okkur líst alveg svakalega vel á hana. Tvítug stelpa frá Stokkhólmi, með einhverja kennaramenntun og á fjögur systkini á aldrinum 4-11 ára og virðist alveg elska börn. Gaman að sjá svo hvernig börnunum líkar við hana.
Styttist í Stokkhólmsferðina hjá okkur Helga. 10 ár frá því að við kynntumst og 4 ár frá því við giftum okkur, þann 1.maí. Já, tíminn líður hratt.....á gervihnattaöld!
Hafið það gott í dag!
Aðeins seinna......smá breyting, okkur er boðið í mat í kvöld til Ragnheiðar og Rafns þannig að bíóferðin verður annað kvöld í staðinn.
Wednesday, 16 April 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
10 ár!!!! usss hvað þetta líður hratt, það eru að verða komin 18 ár hjá mér og mínum og finnst mér það mjög ótrúlegt miðað við að ég er bara alltaf 25 ára.... Heyrðu við þurfum svo að rabba saman um heimsókn til Írisar... annars var ég að bóka okkur Smára til Boston í okt...á maður ekki annars að vera alveg slakur á þessum síðustu og verstu kreppu-tímum hehehe
Knús og kossar frá okkur hér úr rok-rassgatinu.
Guðrún & Co
Já,Guðrún, finna góðan tíma til að fara til Írisar. September er fínn, bara hvort það henti þér vegna Bostonferðarinnar....frábært hjá ykkur. Verðum í símasambandi fljótlega. kv.Elsa
Er hann í golfi með hinu eina sanna Binga??;)
kv.Ásdís
Já, Ásdís, að okkar mati er þetta hinn eini sanni, en kannski ekki sá sami og þjóðin þekkir. Elsa
Post a Comment