Tuesday, 29 July 2008
Ströndin - aftur
Ég og krakkarnir fórum svo á ströndina seinnipartinn því að það var ekki hægt að vera í garðinum vegna hita og ekki hægt að hanga inni með krakka sem rífast og slást. Helgi var inni að vinna (vona ég).
Það var líka hrikalegur hiti á ströndinni og sjórinn bara heitur, ekki mikil kæling í honum en samt betra að bleyta sig aðeins. Það er að byrja geitungatími hérna og maður fann fyrir því á ströndinni og svo er allt morandi í maríubjöllum sem setjast á mann í gríð og erg. Fyrstu bjöllurnar fannst mér bara sætar en svo eftir fimmtíu bjöllur fer maður að pirrast!
Áfram hiti næstu daga en svo er spáð skúrum um helgina.
Monday, 28 July 2008
Kæling
Þetta er ein aðferð sem börnin nota til að kæla sig niður í hitabylgjunni. Fara ofan í sundlaug og svo láta úða yfir sig köldu vatni. Hitinn kominn í 28°c kl. 13:15 hjá okkur í skugga norðan megin.....úff!
Hiti, hiti, hiti
Í gærkvöldi kl. 21:00 var ennþá 25°c hiti.
Við erum tvisvar búin að fara á ströndina í þessari hitabylgju og svo eru krakkarnir búnir að vera að sulla í litlu sundlauginni úti í garði hjá okkur. Allar sólhlífar og markísan okkar eru uppi við og það er reynt að hafa eins mikinn skugga í garðinum og við getum. Ég sit nú aðeins undir sólhlíf og les, það er notalegt en stundum er gott að fara bara inn þó svo að það sé líka mjög heitt þar.
Við erum búin að setja borðviftur í öll herbergin og látum blása á okkur þegar við förum að sofa og allir gluggar galopnir. Verð nú að segja það að ég gæti ekki búið þar sem er svona heitt marga mánuði á ári!
Helgi búinn í sumarfríi og sem betur fer keypti hann loftkælingu í vinnuherbergið sitt í fyrra og getur unnið í svölu lofti en í staðinn er bara smá hávaði! Krakkarnir eru áfram í sumarfríi þessa vikuna og fara svo part úr degi á frístundaheimilið í næstu viku.
Klukkan er tíu núna og hitinn þegar kominn í 25°c í skugga norðan megin!
Hita og svita kveðja héðan frá Lundi.
Friday, 25 July 2008
Thursday, 24 July 2008
Wednesday, 23 July 2008
Spegilskrift
Rakel er ótrúleg þegar hún skrifar tölustafi í parísarleik.....yfirleitt er stór hluti hjá henni spegilskrift.
Restaurang Valdemar
Fórum út að borða í Jakriborg sem er rétt fyrir utan Lund. Þetta er svokallaður "New town" sem eru ný hús byggð í gömlum arkitektúr og allt gert gamaldags í kringum það. Mjög gaman að koma þangað og rölta um göngugötuna.
Afmælisgjöfin frá Bjarmalandi 19 komin!
Arnar Ingi fékk sendan heilan kassa af íslensku nammi í afmælisgjöf. Hann var fljótur að byrja á kræsingunum. Það tók póstinn mánuð að koma kassanum til okkar...lenti fyrst í tollinum en svo leystist það mál farsællega.
Monday, 21 July 2008
Slegið á sloppnum
Það hefur verið draumurinn hjá Helga að fá sér sláttuvélmenni frá því að við sáum einn náunga í Fossvoginum fara út á sloppnum og láta vélmenni slá garðinn hjá sér. Eins og þið sjáið þá lét Helgi drauminn rætast í vor og keypti eitt slíkt.
Sunday, 20 July 2008
FULLT AF MYNDUM ÚR DANMERKURFERÐINNI
Búið að vera rólegt hjá okkur frá því við komum heim. Búin að þvo fullt, fullt af þvotti, versla í matinn og Helgi fór í golf með Birni Inga.
Ekkert sérstakt á dagskránni nema ég fer í golfkennslu á þriðjudag og fimmtudag. Getum vonandi skroppið á ströndina með krakkana seinna í vikunni. Er sjálf komin með hundleið á skemmtigörðum og er til í að taka smá frí frá þeim. Veit nú samt að hún Rakel er ekki sammála mér í þeim málum.
Engir gestir hjá okkur núna og ekkert bókað á okkur! Ég kem svo til Íslands þann 10.ágúst í húsmæðraorlof en krakkarnir verða byrjaðir á frístundaheimilinu þá þannig að Helgi getur unnið í friði.
Kveðja til allra frá okkur í Lundi.
Saturday, 19 July 2008
Komin aftur
Þetta var mjög skemmtileg vika og við vorum frekar heppin með veður miðað við veðurspánna. Það var spáð skúrum flesta daga en svo fengum við þurra daga og skúri einhver kvöldin en suma ansi hressilega . Reyndar rigndi eins og hellt væri úr fötu eina nóttina.
Á fimmtudaginn fórum við að skoða kafbát í Naskov sem að rússar gáfu dönum kringum 1950. Skil ekki hvernig einhver getur verið í kafbát, hrikalega þröngt og alls staða troðið pínulitlum kojum þar sem skipverjar sváfu. Held að lengdin á kojunum hafi verið 170cm!
Síðan fórum við í Knuthenborg dýragarðinn þar sem maður keyrir á bílum um garðinn og getur farið út og klappað dýrum t.d camel dýrum og lamadýrum. Svo keyrðum við í gegn þar sem ljónin eru og það var bara vappað í kringum bílinn hjá manni. Þarna voru líka gíraffar, sebrahestar, kengúrur og alls konar fuglar, nashyrningar, apar og fleiri dýr. Mjög skemmtilegur garður.
Föstudagurinn var svo bara notaður í leti og farið í pottinn, borðaðir afgangar út ísskápnum og smá göngutúr á ströndinni í skýjuðu veðri og smá roki.
Vel heppnuð vika!
Wednesday, 16 July 2008
Marielyst
Við komum hingað til Marielyst á sunnudagskvöld og ferðin gekk mjög vel.
Mánudagurinn fór að skoða okkur aðeins um og fara í minigolf. Svo var farið í nokkra leiki með KUBB um kvöldið og þetta er alveg þrælskemmtilegur leikur. En það er eins gott að hafa nokkuð góðan garð til að raða upp kubbunum og henda spýtunum.
Fórum svo í go-kart á þriðjudag og aðeins út á golfvöll að slá boltum úr fötu. Og svo var grilluð þessa æðislega nautasteik um kvöldið ásamt tilheyrandi......og svo grillaðir bananar með súkkulaði og ís í eftirrétt....namm,namm. Ég ætla nú ekkert að nefna allt nammið sem hefur ráðist á konuna og troðið sér upp í munninn á henni.....nammið verður skammað þegar sumarbústaðaferðin er búin.
Núna eru Helgi og Björn Ingi í golfi. Ætlum kannski að fara í dýragarð í dag þegar þeir félagar koma til baka. Reyndar er lífið svo ljúft hérna að við sofum til níu eða hálftíu á morgnanna. Og ekki má gleyma heita pottinum sem er notaður hér. Og sigurvegarinn er......Rakel....algjör fíkill í heita pottinn! Spilum svo KUBB svona reglulega og skemmtum okkur vel.
Over and out!
Saturday, 12 July 2008
Danmörk
Hafið það gott.
Thursday, 10 July 2008
Það sama
Svo er það Danmörk. Magga og Björn Ingi fara á laugardaginn og taka við húsinu og svo komum við á sunnudag þegar við höfum keyrt mömmu og pabba út á flugvöll.
Tuesday, 8 July 2008
Slappað af eftir sætabrauðsát
Biggi, Sigrún, Fannar, Freyja og Frosti kíktu í dagsferð til okkar í dag. Þau eru búin að vera í sumarhúsi í Danmörku og eru núna í Kaupmannahöfn en halda til Íslands á morgun.
Mamma og pabbi fóru í heimsókn til Stellu systur hans pabba sem býr í Varberg sem er tæplega 200km frá okkur í Lundi. Þau ætla að gista þar í nótt. Við erum sem sagt bíllaus í dag og á morgun því við lánuðum þeim bílinn okkar. Við þurftum að sækja gestina á lestarstöðina með strætó og senda þau til baka með strætó, en við borguðum strætóferðirnar fyrir þau í sárabætur :)
Monday, 7 July 2008
Ven
Fórum í dagsferð á eyjuna Ven. Keyrðum til Landskrona sem er ca. 30 mínútur frá Lundi. Tókum þar ferju til Ven. Þetta minnir svolítið á Hrísey, bara stærra og með t.d nokkrum veitingastöðum, litlu hóteli, gistiheimili og hjólaleigu. Þetta er mjög gömul eyja og var áður í eigu Danmerkur en er nú sænsk. Mjög skemmtilegur dagur og við lentum í einum svakalegum rigningarskúr en við vorum svo heppin að vera inni og borða á meðan. Annars var svaka hlýtt og sólin skein góðan hluta úr deginum.
Sunday, 6 July 2008
Finn Café
Fórum út að borða á Finn Café og fengum alveg dýrindis mat. Skál fyrir afmælisbarninu!
P.S Vil bara benda ykkur á að skoða bak við mömmu og pabba, þar erum við Helgi.
60 ára
Til hamingju með daginn mamma/amma/tengdó!
Mamma á afmæli í dag og er sextug. Dagurinn byrjaði með smá skúrum en alveg rosalega hlýtt. Ætlum jafnvel að kíkja í Malmö í dag.
Við Helgi notuðum tækifærið í gærkvöldi og kíktum í heimsókn til Möggu og Björns Inga og skildum börnin eftir hjá ömmu og afa.
Förum út að borða í kvöld og fáum Emelie til að passa. Hafið það gott, kveðja héðan frá Lundi.
Saturday, 5 July 2008
Thursday, 3 July 2008
Wednesday, 2 July 2008
Stadsparken
Fórum í Stadsparken í Lundi í dag. Kíktum á endurnar og páfagaukana. Fórum á leiksvæðið þar og í smá göngutúr um garðinn. Veðrið búið að vera frábært og spáin góð framundan.
Stefnan tekin á að taka því rólega á morgun og hafa það gott úti í garði og leyfa krökkunum að busla í sundlauginni og kannski rölta aðeins í bænum ef við nennum að hreyfa okkur.
Ætlum síðan á föstudaginn að fara út í eyjuna Ven sem er hér rétt fyrir utan Landskrona. Þurfum að fara með ferju þangað og það verður spennandi að skoða þessa litlu eyju.
Tuesday, 1 July 2008
1.júlí
Vinnufélagi hans Helga, hann Gísli er að koma í heimsókn ásamt konu og barni. Þau eru í Kaupmannahöfn og eru að spá í að flytja til Svíþjóðar á næsta ári....vilja kíkja á staðinn og fá upplýsingar.
Mamma og pabbi eru líka á leiðinni og koma til okkar í kvöld og verða hjá okkur til 13.júlí.
Mamma ætlar að halda uppá sextugs afmælið sitt sem er 6.júlí. En hvað það verður gaman að fá þau í heimsókn! Hlakka til að sjá þau, hef ekki séð pabba frá því um jólin en mamma hefur komið fjórum sinnum í heimsókn til okkar þetta árið, er sem sagt að koma í fimmta skiptið í kvöld. Gaman, gaman.