Já, það er sko hiti hérna þessa dagana. Hitamælirinn okkar sem er norðan megin við húsið og er sem sagt í skugga hefur sýnt 27°c hita enda var ólíft sunnan megin í garðinum í sólinni.
Í gærkvöldi kl. 21:00 var ennþá 25°c hiti.
Við erum tvisvar búin að fara á ströndina í þessari hitabylgju og svo eru krakkarnir búnir að vera að sulla í litlu sundlauginni úti í garði hjá okkur. Allar sólhlífar og markísan okkar eru uppi við og það er reynt að hafa eins mikinn skugga í garðinum og við getum. Ég sit nú aðeins undir sólhlíf og les, það er notalegt en stundum er gott að fara bara inn þó svo að það sé líka mjög heitt þar.
Við erum búin að setja borðviftur í öll herbergin og látum blása á okkur þegar við förum að sofa og allir gluggar galopnir. Verð nú að segja það að ég gæti ekki búið þar sem er svona heitt marga mánuði á ári!
Helgi búinn í sumarfríi og sem betur fer keypti hann loftkælingu í vinnuherbergið sitt í fyrra og getur unnið í svölu lofti en í staðinn er bara smá hávaði! Krakkarnir eru áfram í sumarfríi þessa vikuna og fara svo part úr degi á frístundaheimilið í næstu viku.
Klukkan er tíu núna og hitinn þegar kominn í 25°c í skugga norðan megin!
Hita og svita kveðja héðan frá Lundi.
Monday, 28 July 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment