Tuesday, 1 July 2008

1.júlí

Ótrúlegt en satt....það er kominn júlí mánuður. Fór í saumaklúbb í gærkvöldi, gaman að hitta allt liðið aftur, búið að vera mikið að gera hjá öllum með gestum.

Vinnufélagi hans Helga, hann Gísli er að koma í heimsókn ásamt konu og barni. Þau eru í Kaupmannahöfn og eru að spá í að flytja til Svíþjóðar á næsta ári....vilja kíkja á staðinn og fá upplýsingar.

Mamma og pabbi eru líka á leiðinni og koma til okkar í kvöld og verða hjá okkur til 13.júlí.
Mamma ætlar að halda uppá sextugs afmælið sitt sem er 6.júlí. En hvað það verður gaman að fá þau í heimsókn! Hlakka til að sjá þau, hef ekki séð pabba frá því um jólin en mamma hefur komið fjórum sinnum í heimsókn til okkar þetta árið, er sem sagt að koma í fimmta skiptið í kvöld. Gaman, gaman.

No comments: