Sunday, 20 July 2008

FULLT AF MYNDUM ÚR DANMERKURFERÐINNI

Erum búin að setja inn myndir úr ferðinni okkar.

Búið að vera rólegt hjá okkur frá því við komum heim. Búin að þvo fullt, fullt af þvotti, versla í matinn og Helgi fór í golf með Birni Inga.

Ekkert sérstakt á dagskránni nema ég fer í golfkennslu á þriðjudag og fimmtudag. Getum vonandi skroppið á ströndina með krakkana seinna í vikunni. Er sjálf komin með hundleið á skemmtigörðum og er til í að taka smá frí frá þeim. Veit nú samt að hún Rakel er ekki sammála mér í þeim málum.

Engir gestir hjá okkur núna og ekkert bókað á okkur! Ég kem svo til Íslands þann 10.ágúst í húsmæðraorlof en krakkarnir verða byrjaðir á frístundaheimilinu þá þannig að Helgi getur unnið í friði.

Kveðja til allra frá okkur í Lundi.

1 comment:

Anonymous said...

Vá ekkert smá gaman að sjá svona myndir. Þetta er frábært.... oh ... hvað ég væri til í smá svona skrepp ...ætti kannski bara að gauka því að Önnu að reyna að fara eina stutta helgarferð bara við 2 til þín :o) það væri sko bara gaman. Læt mig dreyma þegar að ég leggst á koddann.
Kv. Hafdís
Helga Rós er einmitt að fara til Kollu á þriðjudaginn... ekkert smá skemmtilegt.