Allt við það sama á heimilinu. Mamma og pabbi komin til baka frá Stellu. Ég fór í golfkennslu í morgun og gekk bara svona lala....Er farin að skilja betur hvernig maður á að beita líkamanum en það er ekki þar með sagt að ég geti svo farið eftir því. Maður hugsar um of marga þætti í einu sem svo verður að hræðilegri sveiflu hjá manni. En ég fer kannski fljótlega út að völl með Helga og sé hvernig gengur.
Svo er það Danmörk. Magga og Björn Ingi fara á laugardaginn og taka við húsinu og svo komum við á sunnudag þegar við höfum keyrt mömmu og pabba út á flugvöll.
Thursday, 10 July 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment