Wednesday, 16 July 2008

Marielyst

Komst smá á netið og ákvað að deila með ykkur því sem af er ferðinni okkar.
Við komum hingað til Marielyst á sunnudagskvöld og ferðin gekk mjög vel.
Mánudagurinn fór að skoða okkur aðeins um og fara í minigolf. Svo var farið í nokkra leiki með KUBB um kvöldið og þetta er alveg þrælskemmtilegur leikur. En það er eins gott að hafa nokkuð góðan garð til að raða upp kubbunum og henda spýtunum.

Fórum svo í go-kart á þriðjudag og aðeins út á golfvöll að slá boltum úr fötu. Og svo var grilluð þessa æðislega nautasteik um kvöldið ásamt tilheyrandi......og svo grillaðir bananar með súkkulaði og ís í eftirrétt....namm,namm. Ég ætla nú ekkert að nefna allt nammið sem hefur ráðist á konuna og troðið sér upp í munninn á henni.....nammið verður skammað þegar sumarbústaðaferðin er búin.

Núna eru Helgi og Björn Ingi í golfi. Ætlum kannski að fara í dýragarð í dag þegar þeir félagar koma til baka. Reyndar er lífið svo ljúft hérna að við sofum til níu eða hálftíu á morgnanna. Og ekki má gleyma heita pottinum sem er notaður hér. Og sigurvegarinn er......Rakel....algjör fíkill í heita pottinn! Spilum svo KUBB svona reglulega og skemmtum okkur vel.

Over and out!

1 comment:

Anonymous said...

Jii hvað ég fæ mikinn fiðring þegar að ég les Danmerkur bloggið.... ekki nema 16 dagar í þetta hjá okkur. Ég kannast við þetta með nammið sem að ræðst á mann og skríður upp í munninn á manni, alveg hrikalegt þegar að maður er neyddur til að borða þetta helv..i. Hafið það áfram sem allra best.
Knús og kossar frá Fróni Guðrún & Co