Fór nokkrar holur í golfi í fyrsta skiptið á Kävlinge golfvellinum með Möggu, Birni Inga og Ragnari Helga. Höfðum þetta bara létt og skemmtilegt, töldum engin högg og ég tók bara golfkúluna úr sandinum eftir að hafa ekki hitt nokkrum sinnum. Týndi einni golfkúlu í vatni. Þetta var alveg ágætt en ég hefði nú ekki staðist golfprófið fyrir "græna kortið" í golfi hérna í Svíþjóð. En maður má víst ekki taka þessu of alvarlega svona í fyrstu....er það nokkuð?
Friday, 29 August 2008
Thursday, 28 August 2008
Moskítópartý
Helgi var í Stokkhólmi á ráðstefnu í Skerjagarðinum og þar hafa moskítóflugur það mjög gott. Hann er þegar búinn að finna 17 bit á sér og er með 3-4 bit á vinstri hendi. Eins og sést þá er hann eins og fílamaðurinn, alveg hrikalega bólginn. Hann er nú reyndar líka með eitt bil á hægri hendinni, er allur rauður. Ristin á honum er líka mjög bólgin. Svo eru bit hér og þar á líkamanum, andliti, handleggjum og fótleggjum. ÆÆÆ, aumingja Helgi. Bólgan er nú ekki það versta, það er helv.... kláðinn!
Tuesday, 26 August 2008
Golfkennsla
Fór í golfkennslu í morgun. Er ekki að standa mig neitt sérstaklega vel. Þyrfti að fara sjálf einhvern tímann, það nægir víst ekki að fara í kennslu og æfa sig svo ekkert meira. Hef aldrei farið út á golfvöll að spila....er alltaf að stefna á það en þá þurfum við Helgi að redda pössun og það vantar ömmu og afa til að passa! En hver veit hvað gerist? Segi frá því ef ég fer út á golfvöll einhvern tímann á þessu ári!
Monday, 25 August 2008
Fyrsti sundtíminn hjá Rakel í sundskólanum
Rakel fer einu sinni í viku í sundskóla. Það er nánast engin sundkennsla í skólunum hérna þannig að ef börnin eiga að læra að synda þarf að fara á sér sundnámskeið sem er erfitt að komast að. Eða alla vega þarf maður að sækja um á vorin til að komast á haustnámskeiðin. Ég fór auðvitað íslensku leiðina og fór að kanna málið fyrir stuttu. Þau fóru á biðlista og Rakel komst inn en Arnar Ingi fékk ekki pláss en vonandi kemst hann inn eftir áramótin.
Sunday, 24 August 2008
Handboltinn
Til hamingju Ísland! Frábær árangur hjá íslenska landsliðinu í handbolta að ná silfurverðlaunum á Ólympíuleikunum.
Ég var svo stressuð í byrjun leiksins að ég gat ekki setið kyrr. Fór að taka til hráefni í bakstur og horfði á með öðru auganu. Það fór þó heldur að þyngjast á mér brúnin þegar líða tók á leikinn. Íslenska landsliðið hefði svo sannarlega átt skilið að fá gull eftir árangurinn en frakkarnir eru svo rosalega sterkir leikmenn. Frábært að vera íslendingur núna.
Leikurinn var sem betur fer á kristilegri tíma hjá okkur hérna í Svíþjóð en á Íslandi.....byrjaði 9:45 þannig að við vorum komin á fætur. En ég náði að baka döðlubrauð á meðan leikurinn var í gangi, nú er bara að fá sér smakk.
Fórum á föstudaginn og keyptum nýtt, stærra hjól fyrir Arnar Inga. Rakel fær gamla hjólið hans sem er þó bara rúmlega ársgamalt. Rakel þurfti á stærra hjóli að halda og hún stækkar svo hratt að við þurfum líklega að kaupa nýtt fyrir hana eftir ár og þá fær hún að velja sér hjól. Hún hefur alltaf tekið við hjólunum hans Arnars Inga en okkur fannst ekki hægt að vera að kaupa nýtt hjól fyrir hana í sömu stærð og Arnar Ingi á og kaupa svo stærra fyrir Arnar Inga. Þá yrði "gamla" hjólið hans Arnars bara ónotað í geymslunni. Rakel er líka alveg sátt við það að fá hjól frá Arnari.
Helgi kíkti á hjól í leiðinni og keypti sér eitt slíkt...svaka flott hjól! Núna er bara stefnan hjá okkur hjónum að hjóla reglulega í miðbæinn og borða hádegismat saman, helst einu sinni í viku...gott fyrir líkama og sál.
Helgi fer til Stokkhólms snemma í fyrramálið og kemur aftur á fimmtudaginn.
Rakel byrjar á sundnámskeiði á morgun strax eftir skóla og fer einu sinni í viku. Svo er Arnar Ingi skráður í karate sem byrjar 13.september og er líka einu sinni í viku. Vonandi líkar þeim við þetta. Arnar Ingi ætlar líka að prófa að fara á einn fund hjá skátunum á miðvikudaginn og aldrei að vita nema hann verði skáti!

Wednesday, 20 August 2008
Skólinn byrjaður
Þá er skólinn formlega byrjaður hérna hjá okkur í Lundi.
þetta er allra fyrsti skóladagur Rakelar....hún er byrjuð í 6 ára bekk! Litla stelpan okkar, nú eigum við bara skólabörn, engin leikskólabörn.
Það vildi svo til að í morgun þegar við fórum með krakkana í skólann þá var Rakel alveg ótrúlega feimin. Hún er nú búin að vera á leikskóladeildinni sem er í sama húsi og búin að þvælast oft í skólastofuna sem Arnar Ingi var í (er hennar skólastofa í dag). Hún þekkir alla kennarana og krakkana en samt var einhver feimni í henni. Meiri að segja að fyrir ári síðan þegar hún byrjaði á leikskólanum þá var hún alveg mállaus á sænskuna en það var ekkert mál. Einhver spenningur að byrja í skóla.
Arnar Ingi fór núna í nýja skólastofu sem er bara hinu megin við ganginn þar sem hann var (Rakel er þar núna). Þau eru sem sagt með sama inngang og sama fatahengi. Svo er alltaf einhver samgangur þarna á milli bekkjanna. Rakel er með 7ára krökkum í stofu og Arnar Ingi með 9 ára krökkum í stofu. 6-7 ára saman og 8-9 ára saman.
En smá fréttir....Ég og Arnar Ingi erum á leiðinni til Íslands....verðum 5-11.september. Rakel er sko meira en sátt við það, því að hún ætlar með pabba sínum í Tívolíð í Kaupmannahöfn þegar við förum til Íslands en henni finnst bara of langt þangað til við förum. Hún er svo mikill tívolífíkill :)
Rakel á svo afmæli 12.september og við ætlum að halda uppá það í Skattkammarön sem er stórt leiksvæði hérna. Ég var einmitt að panta hjá þeim laugardaginn 13.september þannig að allt verður klappað og klárt þegar við Arnar Ingi komum til baka. Ég verð búin að redda afmælisgjöf og svoleiðis fyrir skvísuna áður en ég kem til Íslands. Þá er bara eftir að senda út boðskortin og það verður gert í næstu viku.

Á leið í skólann fyrsta skóladaginn

Stolt stelpa fyrsta skóladaginn í 6 ára bekk

Á leið í 8 ára bekk

Búið að úthluta sætum, það breytist samt reglulega yfir veturinn

Arnar kominn í sæti og byrjaður að merkja bækurnar
Í Svíþjóð þarf ekki að kaupa neinar skólabækur, né skriffæri. Eina sem börnin þurfa að skaffa sjálf er einn ávöxtur á dag og auðvitað leikfimisfatnaður.
Allur annar matur er frír, hádegismatur og "mellanmål" kaffitíminn.
Saturday, 16 August 2008
Komin heim frá Íslandi
Þá er ég komin heim aftur frá Íslandi. Mikið skemmti ég mér nú vel þar. Hitti marga vini og nóg að gera. Bara að hugsa um að skemmta sjálfri mér og hafa það gott.
Finn samt að ég er ekki tilbúin að flytja alveg strax aftur til Íslands.
Ferðin heim gekk mjög vel og litla fjölskyldan mín beið eftir mér á flugvellinum í Kastrup og ég fékk knús og kossa. Gaman að sjá þau aftur.
Allt komið í fastar skorður aftur....farin að þvo þvott og vinir krakkana í heimsókn og nánast allt eins,veðrið líka. Og mér líður mjög vel með þetta allt saman.
Búin að setja inn fullt af myndum úr ferðinni, það er bara að fletta niður og skoða.
Kveðja frá Lundi.

Thursday, 14 August 2008
Ísland
Nú er ég ennþá á Íslandi og kem heim til Lundar annað kvöld (15.ág). Ég er búin að hafa það rosalega gott og það er skrítið að vera á Íslandi og alveg barnlaus.
Ég er búin að kíkja í bæinn og labba Laugaveginn sem ég hef ekki gert í mörg ár! Ekki það að ég sé búin að búa í Svíþjóð í mörg ár....ég fór bara mjög sjaldan meðan ég bjó á Íslandi.
Ég er búin að fara í heimsókn til tengdó í Bjarmó, út að borða í hádegi, boðið í mat til Villa og Huldu, boðið í mat til Katrínar. Boðið í kaffi til Svandísar, boðið í kvöldkaffi til Dóru og hitti þar allan saumaklúbbinn. Sigrún Karls kom svo í kaffi í Vesturás. Er svo að fara að borða með Katrínu í hádeginu í dag og svo á pabbi afmæli í dag og það verður fjölskyldumatarboð í kvöld. Fer svo eftir það í heimsókn til Önnu Maríu sem er á leiðinni frá Úthlíð úr sumarbústað. Fer svo bara út á flugvöll um hádegisbil á morgun. Ferðin bara að verða búin!
Ég var nú búin að ákveða að fara í bíó í Íslandsferðinni minni en það er enginn laus tími fyrir það. Náði þó að fara í djúpnæringu og láta dekra við mig.
Búin að hafa það ótrúlega gott og gæti nú alveg vanist því að fara í húsmæðraorlof oftar!
Ætla að fara að njóta dagsins, hafið það gott!

Wednesday, 13 August 2008
Tuesday, 12 August 2008
Monday, 11 August 2008
Sunday, 10 August 2008
Thursday, 7 August 2008
Fiskur og rúgbrauð
Núna er Helgi í Stokkhólmi og ég ákvað að hafa soðin fisk í kvöldmatinn því að Helgi er ekkert mjög hrifinn af soðnum fiski.
Ég hugsaði með mér að gott væri að hafa rúgbrauð með.....en því miður fæst ekki rúgbrauð hérna í Svíþjóð. Þannig að ég bakaði bara rúgbrauð. En það þarf nú að ákveða það með mjög góðum fyrirvara að baka rúgbrauð því að það tekur 6-7 klst. í ofni! En ég hef nú bakað þetta brauð oft áður og finnst það mjög gott og alveg þess virði að bíða eftir því. Reyndar nennti ég ekki oft að baka rúgbrauð þegar við bjuggum á Íslandi því að það er hægt að kaupa svo gott brauð þar.
Helgi kemur seinnipartinn á morgun til baka frá Stokkhólmi og svo fara börnin í barnaafmæli á laugardaginn.
Og svo er að koma að því.....ég kem til Íslands á laugardagskvöldið. Vonandi verður ekki mikil seinkun í fluginu....hef heyrt að það sé búið að vera mikið vesen með flugið núna undanfarið. En ég á að lenda uppúr hálfellefu um kvöldið.
Ég er orðin svo nammiþyrst eftir íslensku nammi að ég get ekki beðið eftir að komast í fríhöfnina og kaupa djúpur, bobbinga, þrist og svona lakkrístengt nammi. Svo ætla ég að borða skyr og fisk á meðan ég er á landinu.
Það verður skrítið að vera á Íslandi og alveg barnlaus! En það verður örugglega alveg frábært þó svo að ég eigi eftir að sakna þeirra. Þetta er nú ekki langur tími, verð eiginlega bara frá 10-15.ágúst því að ég fer ekki frá Lundi fyrr en um kvöldmatarleytið á laugardagskvöldið 9.ágúst.

Monday, 4 August 2008
Ný vika
Þá er komin ný vika og allt fer að komast í fastar skorður. Helgi að vinna og krakkarnir farnir á frístundaheimilið....alla vega í nokkra tíma.
Veðrið var bara fínt um helgina....hlýtt og að mestu skýjað (sem betur fer). Í morgun var alveg hellidemba og núna er hávaðarok en rigningin hætt.
Helgin heppnaðist vel og krakkarnir voru mjög ánægðir. Það var pizzuveisla á laugardag og Arnar Ingi fékk pakka og afmælisköku. Á sunnudag komu svo vinir hans Arnars og hann fékk fleiri pakka og við buðum upp á afgangs pizzu, melónur, muffins og ís. Síðan var rokið af stað í Skattkammarön leiklandið og þau skemmtu sér aldeilis vel þar og voru rennandi sveitt.....tvö af þeim voru komin á bumbuna, bara í stuttbuxum. Það var tekin smá pása til að borða popp en svo rokið af stað til að leika meira.
Þegar heim var komið eftir 3 tíma þá voru þau ekki búin að fá nóg heldur fóru út að hamast með byssur og sverð sem Arnar Ingi hafði fengið í gjöf.
Held að við getum sagt að við höfum haldið vel upp á afmælið hans Arnars Inga reyndar í nokkrum pörtum. Fyrst í Legolandi og svo komu mamma og pabbi og þá voru fullt af pökkum og kaka. Svo pizzuveisla fyrir íslendinga og að lokum Skattkammarön fyrir sænska vini.

Friday, 1 August 2008
Veðurblíðan tekur enda
Nú er veðurblíðan að verða búin hjá okkur. Á morgun á að vera skýjað og um 20°c hiti. Ég er reyndar dauðfegin því að eftir tveggja vikna stanslausa sól og hita þá fær maður leið! En ætli ég verði ekki farin að þrá gott veður á mánudag aftur!
Framtíðarspáin er svo skúrir eftir helgi.
Á morgun ætlum við að bjóða í smá pizzupartý til okkar og svo á sunnudag ætlar Arnar Ingi að bjóða tveimur bestu vinum sínum í smá síðbúna afmælisveislu og bjóða upp á köku. Svo förum við með krakkana og vinina í Skattkammaröen, sem er risastórt leiksvæði (svipað og Veröldin okkar nema margfalt stærra) með veitingasölu og foreldrar eru með börnunum inni á svæðinu.
Þar vonumst við til að þau eyði fullt af sykurorku og svo bjóðum við upp á pylsu og ís.
Þetta verður sem sagt verslunarmannahelgin okkar hér í Lundi. En hafið það gott á Íslandi um helgina og allir að fara varlega!

Subscribe to:
Posts (Atom)