Þá er skólinn formlega byrjaður hérna hjá okkur í Lundi.
þetta er allra fyrsti skóladagur Rakelar....hún er byrjuð í 6 ára bekk! Litla stelpan okkar, nú eigum við bara skólabörn, engin leikskólabörn.
Það vildi svo til að í morgun þegar við fórum með krakkana í skólann þá var Rakel alveg ótrúlega feimin. Hún er nú búin að vera á leikskóladeildinni sem er í sama húsi og búin að þvælast oft í skólastofuna sem Arnar Ingi var í (er hennar skólastofa í dag). Hún þekkir alla kennarana og krakkana en samt var einhver feimni í henni. Meiri að segja að fyrir ári síðan þegar hún byrjaði á leikskólanum þá var hún alveg mállaus á sænskuna en það var ekkert mál. Einhver spenningur að byrja í skóla.
Arnar Ingi fór núna í nýja skólastofu sem er bara hinu megin við ganginn þar sem hann var (Rakel er þar núna). Þau eru sem sagt með sama inngang og sama fatahengi. Svo er alltaf einhver samgangur þarna á milli bekkjanna. Rakel er með 7ára krökkum í stofu og Arnar Ingi með 9 ára krökkum í stofu. 6-7 ára saman og 8-9 ára saman.
En smá fréttir....Ég og Arnar Ingi erum á leiðinni til Íslands....verðum 5-11.september. Rakel er sko meira en sátt við það, því að hún ætlar með pabba sínum í Tívolíð í Kaupmannahöfn þegar við förum til Íslands en henni finnst bara of langt þangað til við förum. Hún er svo mikill tívolífíkill :)
Rakel á svo afmæli 12.september og við ætlum að halda uppá það í Skattkammarön sem er stórt leiksvæði hérna. Ég var einmitt að panta hjá þeim laugardaginn 13.september þannig að allt verður klappað og klárt þegar við Arnar Ingi komum til baka. Ég verð búin að redda afmælisgjöf og svoleiðis fyrir skvísuna áður en ég kem til Íslands. Þá er bara eftir að senda út boðskortin og það verður gert í næstu viku.
Wednesday, 20 August 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ekkert smá hvað tíminn er fljótur að líða. Rakel að verða 6 og Adda 2. Við erum ekki enn búin að ákveða hvenær afmælið verður en það verður í kringum 12. Skemmtilegt fyrirkomulag í skólanum að mæta bara með epli. Skrítið að það skuli ekki verða gert svoleiðis hér. Í stað þess að allir þurfi að hlaupa út og versla. Plús maður er farinn að heyra tölur frá 15 - 20 þús. startkostnaður fyrir skólann. Ótrúlegt alveg. Það verður gaman að sjá hvernig þetta verður hjá Helgu Rós. Jæja ... þetta er bara orðin heil ritgerð hérna hjá mér.
Bið að heilsa að sinni ... skkert smá gaman hjá ykkur frammundan... þið Arnar til Íslands og Rakel og Helgi í tívolí ... frábært allveg.
Kv. Hafdís og co.
Post a Comment