Saturday, 16 August 2008

Komin heim frá Íslandi

Þá er ég komin heim aftur frá Íslandi. Mikið skemmti ég mér nú vel þar. Hitti marga vini og nóg að gera. Bara að hugsa um að skemmta sjálfri mér og hafa það gott.
Finn samt að ég er ekki tilbúin að flytja alveg strax aftur til Íslands.

Ferðin heim gekk mjög vel og litla fjölskyldan mín beið eftir mér á flugvellinum í Kastrup og ég fékk knús og kossa. Gaman að sjá þau aftur.

Allt komið í fastar skorður aftur....farin að þvo þvott og vinir krakkana í heimsókn og nánast allt eins,veðrið líka. Og mér líður mjög vel með þetta allt saman.

Búin að setja inn fullt af myndum úr ferðinni, það er bara að fletta niður og skoða.

Kveðja frá Lundi.

2 comments:

Anonymous said...

Gaman að hafa tíma fyrir sjálfan sig en alltf gott að koma heim og grísina í fangið og kallinn:)
kv.Ásdís

Anonymous said...

Heima er alltaf best. Og það er náttúrulega þar sem að maðurinn og börnin eru :o) Það hefði verið gaman að hitta á þig við færi ... en það kemur að því.
kv. Hafdís