Þá er komin ný vika og allt fer að komast í fastar skorður. Helgi að vinna og krakkarnir farnir á frístundaheimilið....alla vega í nokkra tíma.
Veðrið var bara fínt um helgina....hlýtt og að mestu skýjað (sem betur fer). Í morgun var alveg hellidemba og núna er hávaðarok en rigningin hætt.
Helgin heppnaðist vel og krakkarnir voru mjög ánægðir. Það var pizzuveisla á laugardag og Arnar Ingi fékk pakka og afmælisköku. Á sunnudag komu svo vinir hans Arnars og hann fékk fleiri pakka og við buðum upp á afgangs pizzu, melónur, muffins og ís. Síðan var rokið af stað í Skattkammarön leiklandið og þau skemmtu sér aldeilis vel þar og voru rennandi sveitt.....tvö af þeim voru komin á bumbuna, bara í stuttbuxum. Það var tekin smá pása til að borða popp en svo rokið af stað til að leika meira.
Þegar heim var komið eftir 3 tíma þá voru þau ekki búin að fá nóg heldur fóru út að hamast með byssur og sverð sem Arnar Ingi hafði fengið í gjöf.
Held að við getum sagt að við höfum haldið vel upp á afmælið hans Arnars Inga reyndar í nokkrum pörtum. Fyrst í Legolandi og svo komu mamma og pabbi og þá voru fullt af pökkum og kaka. Svo pizzuveisla fyrir íslendinga og að lokum Skattkammarön fyrir sænska vini.
Monday, 4 August 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment