Sunday, 24 August 2008

Handboltinn

Til hamingju Ísland! Frábær árangur hjá íslenska landsliðinu í handbolta að ná silfurverðlaunum á Ólympíuleikunum.
Ég var svo stressuð í byrjun leiksins að ég gat ekki setið kyrr. Fór að taka til hráefni í bakstur og horfði á með öðru auganu. Það fór þó heldur að þyngjast á mér brúnin þegar líða tók á leikinn. Íslenska landsliðið hefði svo sannarlega átt skilið að fá gull eftir árangurinn en frakkarnir eru svo rosalega sterkir leikmenn. Frábært að vera íslendingur núna.
Leikurinn var sem betur fer á kristilegri tíma hjá okkur hérna í Svíþjóð en á Íslandi.....byrjaði 9:45 þannig að við vorum komin á fætur. En ég náði að baka döðlubrauð á meðan leikurinn var í gangi, nú er bara að fá sér smakk.

Fórum á föstudaginn og keyptum nýtt, stærra hjól fyrir Arnar Inga. Rakel fær gamla hjólið hans sem er þó bara rúmlega ársgamalt. Rakel þurfti á stærra hjóli að halda og hún stækkar svo hratt að við þurfum líklega að kaupa nýtt fyrir hana eftir ár og þá fær hún að velja sér hjól. Hún hefur alltaf tekið við hjólunum hans Arnars Inga en okkur fannst ekki hægt að vera að kaupa nýtt hjól fyrir hana í sömu stærð og Arnar Ingi á og kaupa svo stærra fyrir Arnar Inga. Þá yrði "gamla" hjólið hans Arnars bara ónotað í geymslunni. Rakel er líka alveg sátt við það að fá hjól frá Arnari.
Helgi kíkti á hjól í leiðinni og keypti sér eitt slíkt...svaka flott hjól! Núna er bara stefnan hjá okkur hjónum að hjóla reglulega í miðbæinn og borða hádegismat saman, helst einu sinni í viku...gott fyrir líkama og sál.

Helgi fer til Stokkhólms snemma í fyrramálið og kemur aftur á fimmtudaginn.

Rakel byrjar á sundnámskeiði á morgun strax eftir skóla og fer einu sinni í viku. Svo er Arnar Ingi skráður í karate sem byrjar 13.september og er líka einu sinni í viku. Vonandi líkar þeim við þetta. Arnar Ingi ætlar líka að prófa að fara á einn fund hjá skátunum á miðvikudaginn og aldrei að vita nema hann verði skáti!

No comments: