Nú er ég ennþá á Íslandi og kem heim til Lundar annað kvöld (15.ág). Ég er búin að hafa það rosalega gott og það er skrítið að vera á Íslandi og alveg barnlaus.
Ég er búin að kíkja í bæinn og labba Laugaveginn sem ég hef ekki gert í mörg ár! Ekki það að ég sé búin að búa í Svíþjóð í mörg ár....ég fór bara mjög sjaldan meðan ég bjó á Íslandi.
Ég er búin að fara í heimsókn til tengdó í Bjarmó, út að borða í hádegi, boðið í mat til Villa og Huldu, boðið í mat til Katrínar. Boðið í kaffi til Svandísar, boðið í kvöldkaffi til Dóru og hitti þar allan saumaklúbbinn. Sigrún Karls kom svo í kaffi í Vesturás. Er svo að fara að borða með Katrínu í hádeginu í dag og svo á pabbi afmæli í dag og það verður fjölskyldumatarboð í kvöld. Fer svo eftir það í heimsókn til Önnu Maríu sem er á leiðinni frá Úthlíð úr sumarbústað. Fer svo bara út á flugvöll um hádegisbil á morgun. Ferðin bara að verða búin!
Ég var nú búin að ákveða að fara í bíó í Íslandsferðinni minni en það er enginn laus tími fyrir það. Náði þó að fara í djúpnæringu og láta dekra við mig.
Búin að hafa það ótrúlega gott og gæti nú alveg vanist því að fara í húsmæðraorlof oftar!
Ætla að fara að njóta dagsins, hafið það gott!
Thursday, 14 August 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Tíminn er ótrúlega fljótur að líða þessa dagana. Vona að þú hafir átt góðar stundir á Íslandinu góða. Kemur þú nokkuð um jól/áramót ?
Kolla og Elías eru að koma. Þannig að það verður mikið stuð í þessari fjölskyldu.
Kv.Hafdís og co.
Post a Comment